Fréttir

Körfubolti | 26. febrúar 2005

Keflavík-Njarðvík á sunndag

Það hafa margir stórir og skemmtilegir leikir farið fram á Sunnubrautinni þetta tímabilið, td í Evrópukeppninni.  Nú á sunnudaginn fer fram einn slíkur þegar nágrannar okkar í Njarðvík koma í heimsókn. Það þar ekki að minna nokkur mann á að mæta á leiki þegar þessi lið mætast, því leikir þessara liða eru ávalt skemmtilegir. Keflavík og Njarðvík mætust í deildinni 14 des. í Njarðvík og fór sá leikur 73-78 fyrir okkur.  Liðin  mætust líka í bikarkeppninni og þar hafði Njarðvík betur   85-88  í Keflavík. Leikurinn á sunnudaginn er mikilvægur enda stendur barátan núna á milli Keflavíkur, Njarðvíkur og Snæfels um hvað af þremur efstu sætum þau fá.  Keflavík hefði geta tryggt sér efsta sætið og um leið deildarmeistaratitilinn í síðustu umferð á móti Skallgrím. Sá leikur tapaðist og því er mikilvægt að tryggja sér titilinn núna á sunnudaginn. Allir á leikinn á sunnudaginn og ÁFRAM KEFLAVÍK.