Keflavík og Fjölnir mætast í kvöld
Keflavík mætir Fjölni í frestuðum leik í kvöld kl. 19.15. Leikurinn fer fram í Íþróttmiðstöð Grafarvogs en búið er að leggja nýtt parket á húsið. Okkar menn er á toppnum með 22. stig eftir 12. leik en Fjölnismenn hafa 6. stig og verma botnsætið. Fjölnir komst í undanúrslit í Lýsingarbikarnum um síðustu helgi eftir sigur á Þór Þorlákshöfn, 87-52.
Karlton Mims, Kristinn Jónasson, Anthony Drejaj og Níels P Dungal eru stigahæstu leikmenn Fjölnis.
Tommy í leik gegn Grindavík.