Keflavík og Grindavík mætast aftur í kvöld
Eftir stórleikinn í Röstinni á laugardag þar sem Keflavík hafði betur í frábærum leik, má búast við að Grindjánar mæti til leiks “all guns blazing” eins og sagt yrði á enskunni. Skytturnar verða nefnilega að vera í stuði, annars eiga þeir verulega erfitt verk fyrir höndum. Við vitum hins vegar að skyttur þeirra eru frábærar og ef þeir komast í verulegt stuð verður sigurinn ekki auðsóttur fyrir okkar menn.
Grindvíkingum er þó eflaust meira umhugað um varnarleik sinn eftir fyrsta leikinn þar sem þeim gekk ekkert að stöðva ferska Keflvíkinga. Spurningin er bara, hvernig á að stoppa Keflavík? Friðrik Ingi hefur örugglega kortlagt Keflavíkurliðið og kannski reynir hann eitthvað nýtt, t.d. “nýja” gerð af pressu- eða svæðisvörn. Eftir tilkomu Eds er þó afar erfitt að stöðva Keflavíkurliði þar sem árangur byggist ekki lengur alfarið á góðri 3ja stiga nýtingu, þó vissulega hjálpi hún til og hafi veri hreint mögnuð í úrslitakeppninni. Vonir Grindvíkinga byggjast einna helst á því að Keflavík hitti illa utan að velli, en þeir sjálfir vel.
Okkar menn eru náttúrulega fullir sjálfstrausts, en vita mæta vel að Grindvík getur á góðum degi unnið Keflavík. Það þarf ekki annað til en að Keflvíkingar séu ekki 100% fókuseraðir í varnarleiknum. Því slakur varnarleikur kemur andstæðingunum í stuð og kemur í veg fyrir auðveldar körfur úr hraðupphlaupum, en þær byggja jú fyrst og fremst á sterkri vörn.
Leikurinn í kvöld er alger lykilleikur í einvíginu. Vinni Keflavík er útlitið svart fyrir Grindavík, en vinni Grindavík er allt opið upp á gátt á ný. Þvi má búast við blóðugri baráttu frá fyrstu mínútu.
Heimasíðan vill hvetja alla Keflvíkinga til að koma og verða vitni að frábærum leik og einnig Grindvíkinga til að sitja ekki fyrir framan sjónvarpið heldur koma til Kef og hvetja sína menn.
Heimasíðan vill líka minna fólk á að mæta snemma í kvöld, þar sem hljómsveitin glaðbeitta Á móti sól mun hita mannskapinn upp kl. 18.30.
ÁFRAM KEFLAVÍK !!!