KEFLAVÍK og ÍR leika oddaleik á morgun!
Heimasíðan lá því miður niðri um helgina. En nú er ljóst að Keflavík og ÍR hafa unnið sinn leikinn hvort í 8-liða úrslitunum og þurfa því að mætast í Oddaleik á morgun! Kannski áttu ekki margir von á þessu, en samt ber þess að minnast að Seljaskóli hefur ávallt reynst Keflavík erfiður og hafa Keflvíkingar nú tapað tvívegis þar í vetur.
Leikirnir hafa verið afar ólíkir, fyrst vann Keflavík létt og síðan tapaði Keflavík létt. Gallinn í gær var líklega sá að okkar menn héldu einhverra hluta vegna að leikurinn yrði léttur og mættu því ekki tilbúnir í baráttuna. ÍR-ingar vorun hins vegar ljóngrimmir og unnu verðskuldaðan sigur.
Burtséð frá leiknum vakti léleg framkvæmd leiksins verulega athygli þar sem eiginkona eins leikmanns ÍR-liðsins komst óáreitt upp með það að vaða inn á miðjan völl og ausa fúkyrðum yfir Ed Saunders. Dómara leiksins létu þetta óátalið en gáfu síðan Ed tæknivíti um leið og hann svaraði svívirðingunum. Mogginn hafði þetta um málið að segja:
"EIGINKONA leikmanns ÍR gerði sér lítið fyrir á leik ÍR og Keflavíkur í gærkvöldi, gekk inná völlinn og upp að Keflvíkingnum Edmund Saunders til að láta hann fá það óþvegið, líklega eftir að henni fannst illa farið með sinn mann en Saunders fékk úr þeirri viðureign tvö vítaskot.
GÆSLUMENN leiksins fylgdust með en gerðu ekki neitt og þegar konan hafði lokið skammarræðu sinni gekk hún aftur upp í stúku við fögnuð heimamanna en sendi þaðan til Saunders ljót fingurmerki, sem jafnt fullorðnir og ungir krakkar sáu greinilega.
LEIKMENN Keflavíkur og flestir áhorfendur fylgdust forviða með þessari uppákomu enda greinilega eitthvað farið alvarlega úrskeiðis hjá starfsmönnum leiksins.
EDMUND Saunders reyndi að halda ró sinni og hitti úr báðum vítaskotunum en stóðst þá ekki mátið og veifaði konunni. Fyrir það fékk hann hinsvegar villu fyrir óíþróttamannslega framkomu og fannst mörgum refsingin hörð. Hófust þá mótmæli en fleiri villur fylgdu í kjölfarið og eiginmaðurinn, Eugene Christopher, skoraði úr þremur vítaskotum fyrir ÍR."
Það verður að gefa ÍR-ingum og dómurum falleinkunn fyrir það hvernig brugðist var við þessari furðulegu uppákomu.
Engu að síður, ÍR vann Keflavík og nú eru okkar menn með "bakið upp við vegginn" eins og svo oft er sagt. Ekkert nema sigur kemur til greina á morgun og vonandi fjölmenna Keflvíkingar á leikinn og láta vel í sér heyra. Þetta er fyrsti (en vonandi ekki síðasti) úrslitaleikurinn okkar á Íslandsmótinu!