Fréttir

Körfubolti | 3. febrúar 2004

Keflavík og KR hafa samtals 19 sinnum orðið Bikarmeistarar kvenna

Segja má að KR og Keflavík berið höfuð og herðar yfir önnur félög í sögu Bikarkeppninnar. Fyrst var keppt árið 1975 og þá sigruðu Þórsarar frá Akureyri. Síðan voru ÍS stúlkur sterkar næstu árin, en síðustu 20 ár hafa Keflavík og KR nánast einokað þessa keppni, Keflavík hefur 10 sinnum orðið Bikarmeistari og KR 9 sinnum. Bæði lið leika nú í 15. skipti til úrslita um Bikarinn. Keflavíkurstúlkur unnu það afrek að vinna titilinn 6 sinnum í röð frá 1993 til 1998.

Fimm sinnum hafa þessi félög mæst í úrslitum:

  • 1987 KR - Kef 65-61
  • 1993 Kef - KR 58-54
  • 1995 Kef - KR 61-42
  • 1997 Kef - KR 66-63
  • 2001 KR - Kef 76-58

Eins og sjá má hefur Keflavík 3svar haft sigur, en KR tvisvar. KR á stigametið í Bikarúrslitunum, 88 stig í 30 stiga sigri gegn ÍS árið 1999, en Keflavík hefur unnið stærsta sigurinn í sögunni, 33 stig í 62-29 sigri gegn Haukum árið 1990. Keflavík varð síðast Bikarmeistari árið 2000 eftir 59-48 sigur gegn ÍS, en stúlkurnar hafa tapað í tveimur síðustu úrslitaleikjum sínum, árið 2001 gegn KR og svo í fyrra gegn ÍS.

Hér má sjá heildarsamantekt um Bikarúrslitaleiki á heimasíðu KKÍ.