Fréttir

Körfubolti | 19. júlí 2005

Keflavík og Njarðvík mætast í Bílvíkurmótinu í dag kl 18.30

Keflavík mætir Njarðvík í Bílvíkurmótinu í kvöld kl 18.30. Keflavík lék í gær við Grindavík og tapaðist sá leikur 73-107. Nokkrir ungir og efnlegir strákar fengu að spreyta sig í gær og líklegt að sama verði upp á teningnum í kvöld. Magnús Þór Gunnarson var stigahæstur í gær með 21 stig, Arnar Freyr skoraði 18, Halldór Halldórsson 11 og Þröstur skoraði 10 stig. Hópurinn í gær var svona skipaður: Elvar Sigurjónsson, Davíð Jónsson, Jóhann Finnsson, Magni Ómarsson, Magnús Þór Gunnarsson, Halldór Örn Halldórsson, Arnar Freyr Jónsson, Jón Gauti, Gunnar H Stefánsson og Þröstur L Jóhannsson