Keflavík og Njarðvík mætast í fjórða skiptið í úrslitum Bikarsins - hafa samtals unnið 11 af síðustu 16 Bikarkeppnum
Keflavík og Njarðvík eru félög með mikla sigurhefði í körfuboltanum. Félögin eiga það sameiginlegt að hafa þurft að fara nokkrum sinnum í Höllina áður en þeim tókst að vinna Bikarinn. Njarðvíkingar fóru fyrst í Höllina árið 1976 og töpuðu þar gegn Ármanni, 98-89. Það var síðan í fimmtu tilraun sem þeim tókst loks að vinna sigur, árið 1987, er þeir burstuðu Valsara 91-69. Síðan héldu þeim engin bönd næstu árin og Njarðvík varð Bikarmeistari fimm sinnum á sex árum eða þar til að Keflvíkingar tóku við kyndlinum og urðu Bikarmeistarar þrisvar á fimm ára tímabili. En Keflavík þurfti líka að læra að vinna Bikartitil, því þeir töpuðu fyrstu tveimur Bikarúrslitaleikjum sínum, árin 1990 og 1991. En það tókst í þriðja skiptið árið 1993 þegar Snæfellingar voru lagðir með yfirburðum, 115-76.
- Njarðvíkingar hafa 14 sinnum komist í úrslitin á síðustu 29 árum, 1976-2004 og 8 sinnum unnið, síðast árið 2002
- Keflavík hefur 8 sinnum komist í úrslitin á síðustu 15 árum, 1990-2004 og 4 sinnum unnið, síðast fyrir ári.
Þrátt fyrir glæsta sögu hafa þessir erkifjendur aðeins mæst þrisvar í úrslitaleiknum sjálfum sem hér segir:
- 1990 Njarðvík - Keflavík 90-84
- 1994 Keflavík - Njarðvík 100-97
- 1999 Njarðvík - Keflavík 102-96
Sem sagt, Njarðvík hefur unnið tvisvar og Keflavík einu sinni. Allir leikirnir hafa verið hreint frábærir og er ekki ástæða til að ætla annað en að svo verði einnig nú!
Hér má sjá samantekt um Bikarúrslitaleiki á heimasíðu KKÍ