Keflavík óvinveitt umhverfi að mati Jesper.
Það styttist í að Danska landsliðið mæti til Keflavíkur til spila við okkur í Evrópukeppninni. Það lítur út fyrir að sumir leikmenn Danska liðsins séu farnir að skjálfa við tilhugsun við að spila og gista í körfuboltabænum Keflavík. Jesper sem spilaði með Kr-ingum um árið virðist alls ekki hlakka til að koma að og segir í viðtali á kr.is eftirfarandi: Keflavík er ekki beint uppáhaldsstaðurinn minn á Íslandi, svo vægt sé til orða tekið. Ég hef ekki átt góðar stundir þar. Það er synd að liðsfélagar mínir fái ekki að sjá eitthvað af því fallega sem landið hefur upp á að bjóða, en ég býst við að KKÍ vilji hafa okkur í frekar "óvinveittu" umhverfi. Ég er KR-ingur þannig að nei, ég hlakka ekki mikið til að dveljast í Keflavík. Vægast sagt furðuleg ummæli þar á ferð hjá Jesper, en vonandi að þau smiti út frá sér á meðal þeirra Dönsku.