Fréttir

Körfubolti | 8. desember 2004

Keflavík rúllaði yfir Grindavík 90 - 70 í 1 deild kvenna

Keflavík mætti í kvöld Grindavík í 1 deild kvenna.  Um toppslag var að ræða, Keflavík á toppnum með 16 stig og taplausar en Grindavík í öðru sæti með 12 stig.  Það er skemst frá því að segja að leikurinn var eign Keflavíkur frá upphafi og áttu stelpurnar úr Grindavík aldrei möguleika.  Keflavík spilaði fanta vörn og stálu fjöldan allann af boltum úr höndum Grindavíkinga.  Reynsluboltinn Anna María átti mjög góðan leik og sýndi en og aftur að hún hefur engu gleymt, Birna spilaði frábærlega og er pottþétt besti leikmaðurinn í deildinni sem af er,  Rashea stall mikið af boltum og spilaði vel að vanda og Bryndís sem vex með hverjum leik og er orðinn fanta góður leikmaður þó ung sé. Keflavík gat leift sér að hvíla lykilmenn í síðasta leikhluta og leyfa ungu stepunum að spreyta sig, enda komnar með 41 stiga forskot í hálfleik!! Best hjá Grindavík í þessum leik var nýji leikmaður þeirra  Myrah Spence, en var orðin þreytt undir lok leiks.