Keflavík rúllaði yfir KR.
Keflavíkurstelpur sigruðu KRstelpur auðveldlega í kvöld 59-106 í 1 deild kvenna eftir að staðan hafði verið 28-61 í hálfleik. Eins og tölur gefa til kynna voru Keflavíkingar með mikla yfirburði á öllum sviðum í leiknum. Allir leikmenn Keflavíkur fengu að spreyta sig en stigahæst var Rashea sem átti mjög góðan leik, með 26 stig. Hin síunga Anna María skoraði 19 stig, María 18 stig og Bryndís 16 stig. Kristín Blöndal lék aftur eftir langt hlé og var með 6 stig. Keflavík fer því í jólafrí með fullt hús stiga eftir fyrri umferð. Næsti leikur hjá þeim er í Njarðvík miðvikudaginn 5 jan. kl 19.15
Tölfræði úr leiknum hér. KR - Keflavík
Staðan í 1 deild.
Nr. Félag Leik U T Stig Nett Stig 1. Keflavík 10 10 0 851:588 263 20 2. UMFG 10 7 3 611:579 32 14 3. ÍS 10 6 4 654:597 57 12 4. Haukar 10 4 6 623:697 -74 8 5. UMFN 10 3 7 599:656 -57 6 6. KR 10 0 10 520:741 -221 0 |