Fréttir

Keflavík semur við Dominique Hudson
Körfubolti | 16. ágúst 2016

Keflavík semur við Dominique Hudson

Körfuknattleiksdeild Keflavíkur hefur samið við Dominique Hudson um að leika með kvennaliði Keflavíkur á komandi leiktímabili. Dominique er 165 cm á hæð og spilar sem leikstjórnandi. Hún lék með Gardner Webb í NCAA D1 við góðan orðstír, var í úrvalsliði deildarinnar tvö ár í röð . Dominque hefur verið aðstoðarþjálfari hjá North Carolina A&T auk þess að spila í semi pro deild í USA.

Við bjóðum Dominique Hudson velkomna í hópinn í vetur.

Áfram Keflavík!

 


Dominique Hudson (mynd: http://www.gwusports.com)