Keflavík semur við Landsflug
Keflavík drógst sem kunnugt er á móti Lappeenrannan_NMKY frá Finnlandi og Sumykhimprom frá Úkraínu í Evrópukeppninni í ár. Þegar farið var að gera ferðaáætlun kom í ljós að ferðalagið myndi vera langt og strangt. Keflavík á að spila við Lappen 26. oct. og strax 2 dögum seinna við Sumy í Úkraínu. Þó svo vegalengdin frá Finnlandi til Úkraínu sé ekki svo löng, þá leit út fyrir að feðalagið myndi ferða langt þar sem ekki var hægt að fljúga beint. Það hefði því þurft að taka nokkur tengiflug og rútur til að komast á áfangastað. Slíkt ferðalag er að sjálfsögðu mjög erfitt þegar á að fara spila erfiða leiki á móti mjög sterkum liðum.
Það voru því allir möguleikar skoðaðir og að lokum fannst farsæl lausn. Ákveðið var að semja við Landsflug um að flytja liðið alla leið, þeas frá Keflavík til Lappen og þaðan svo beint til Sumy í Úkraínu. Með þessu sparast um 20 tímar, frá því að vera um 38 tíma ferðalag í 17 tíma ferðalag. Þetta er því mikill munur og má segja að möguleikar okkar um að ná í hagstæð úrslit aukist til muna. Þetta eru því góðar fréttir fyrir okkur og kunnum við þeim hjá Landsflugi bestu þakkir fyrir.
Dornier DO-228-202k frá Landsflugi.