Keflavík semur við Porsche
Keflavík hefur samið við bandaríska bakvörðinn Porsche Landry um að leika með liðinu í vetur. Porsche lék með liði Houston Cougars í bandaríska háskólaboltanum, þar sem hún skoraði 16,6 stig og var með um 5 stoðsendingar að meðaltali í leik síðasta árið sitt. Porsche er ætlað að fylla það skarð sem Jessica Jenkins skilur eftir sig frá sl. tímabili.
Áhugasamir geta kynnt sér þessa stúlku betur á heimasíðu Houston Cougars; http://www.uhcougars.com/sports/w-baskbl/mtt/porsche_landry_371196.html, en þar kemur m.a. fram að Porsche var valin tvisvar í "First Team All-Conference - USA selection", þ.e. tímabilin 2010-2011 og 2012-2013.
Myndin sem fylgir er fengin að láni hjá www.redraiders.com