Keflavík sigraði Grindavík 70-57 og einvígið 3-0.
Keflavík sigraði Grindavík gær 70-57 og varð þar með Íslandsmeistari þriðja árið í röð. Það að þær hafi sigrað úrslitaeinvígið við Grindavík 3-0 kemur kannski mörgum á óvart, nema kannski okkur Keflavíkingum. Það verður þó að segjast að margir höfðu spá jafnara einvígi. Ástæðan sennilega sú að í liði Grindavíkur eru margir góðir leikmenn og t.d. fóru Erla Þorsteinsdóttir og Erla Reynisdóttir yfir til Grindavíkur fyrir tímabilið. Svandís Sigurðardóttir ein af sterkari leikmönum ÍS skipti einnig yfir og fyrir loka átökinn fengu þær svo eina af betri erlendu leikmönum sem hér hefur spilað til liðs við sig. Þær sigruðu Hauka í undanúrslitum 2-0 og liðið virtist vera að smella saman. Önnur ástæða fyrir því að margir héldu að þetta einvígi yrði jafnara er að margar ungar stelpur eru að koma upp í Keflavík og reynslan ekki þeirra megin. Kefalvík var líka með frábæran kana Reashea Bristol sem þurfti að yfirgefa liðið, en í hennar stað kom Alex Stewart sem hefur vaxið með hverjum leik og spilað frábærlega í úrslitakeppninni.
Nú að leiknum í gær. Það virtist ekkert trufla leikmenn Keflavíkur að hafa bikarinn klárann á borði við hliðalínuna. Þær mætu ákveðnar til leiks og komust mest í 12-4 og settu línurnar fyrir leikinn. Grindavík náði oft að minnka muninn en aldrei að jafna eða komast yfir. Grindavík minnkaði muninn niður í eitt stig 20-19 í öðrum leikhluta og staðan í var hálfleik 36-31.
Þriðji leikhluti var mjög skemmtilegur og komust Keflvíkingar fljótlega í átta stiga mun. Rita sem hafði verið í stangri gæslu allann leikinn, skorar 10 stig á stuttum kafla og þar af tvær þriggja stiga körfur og staðan orðin 43-41, og leikurinn opnaður upp á gátt. Alex tók þá til sinna ráða og skoraði fjögur stig í röð og Keflvíkingar komast í 50-43 áður en Sólveig setur niður þrist og staðan í fyrir fjórða leikhluta 50-46.
Eins og svo oft áður virðist Alex hafa það sem til þarf til að klára leiki og skorði hún fyrstu 4 stig leikhlutans. Maria Ben átti þó mikilvægustu körfu leiksins þegar hún skoraði þrist í stöðunni 54-50. Grindavík reyndu hvað þær gátu í lokinn og tóku mikið af slæmum skotum og Keflavík sigraði leikinn með 13 stiga mun.
Bestar í kvöld, Alex sem skoraði 24 stig, tók 10 fráköst og var valin besti leikmaður úrslitakeppninnar. Birna Valgarðs. skoraði 8 stig og lék góða vörn á Ritu. Anna María sem lék sinn 500 leik, skoraði 8 stig og tók 14 fráköst. Svava skoraði 9 mikilvæg stig, Bryndís 8 stig og 9 fráköst og María Ben 7 stig og átti mikilvægustu körfu leiksins. Rannveig skoraði svo 6 stig og átti margar góðar sendingar og spilaði góða vörn.
Sverrir Þór þjálfari hefur gert frábæra hluti með liðið í vetur og það á sínu fyrsta ári sem þjálfari meistaraflokks. Sverri tókst að vinna fjóra titla með liðinum, meistarakeppnina, hópbílameistarar, deildarmeistarar og svo Íslandsmeistarar. Sverrir náði að gera efnilegar stelpur að góðum leikmönnum saman ber Bryndísi Guðmunds. og rífa liðið upp úr öldudal sem það lenti í eftir að Reshea fór.
Umfjöllun_á_kki.is Tölfræði_úr_leiknum.
Til hamingju Sverrir og Stelpur. Þið eru bestar!!!!!