Fréttir

Körfubolti | 2. apríl 2005

Keflavík sigraði Grindavík 89-87, meira hér.

Keflavík sigraði Grindavík öðrum leik um Íslandsmeistaratitilinn í dag. Keflavík er því komið 2-0 yfir og næsti leikur er á miðvikudag, þar sem Keflavík getur tryggt sér titilinn. Keflavík vann leikinn 89-87 eftir að staðan eftir venjulegan leiktíma var, 81-81. Leikurinn var mjög  jafn og skemmtilegur og ekki síður barátta á pöllunum um að hvetja sitt lið vel.  Keflavík var með 8 stiga forustu eftir  fyrsta leikhluta, 17-25 en í öðrum leikhluta gekk sóknarleikurinn ekki nógu vel og Grindavík komst yfir 44-37 fyrir hlé. Rita var mjög erfið við að eiga á þessum kafla og sá að mestu um stigaskorið hjá Grindavík

Í seinni hálfleik fór Keflavík að spila mjög góða vörn sem Grindavík átti fá svör við. Birna sem hafði haft hægt um sig hrökk í gang og skoraði margar fallegar körfur. Keflavík skoraði 11 stig í röð, og staðan orðin 50-57. Smá vandræði í sóknarleiknum hleypti þeim aftur inn í leikinn og Grindavík náði forustu 73-72. Anna María sem var að leika sinn 500 leik, skoraði og staðan 78-81 og aðeins 25 sek. eftir. Þarna heldur flestir að þetta væri komið hjá Keflavík en Rita skoraði ævintýralega 3 stiga körfu, þegar aðeins 6 sek. voru eftir. Keflavík náði ekki að skora og leikurinn fór því framlengingu.

Alex hefur oft verið hrósað hér á heimsíðunni fyrir ótrúlega yfirvegun á spennandi augnablikum. Hún tók til sinna ráða í byrjun framlengingar og skoraði fyrstu 5 stigin. Grindavík fékk svo 2 vítaskot í stöðunni 86-89 og skoruðu úr öðru. Birna náði svo frákastinu og leikurinn búinn. Frábær leikur og ákaflega mikilvægt að vinna þennan leik.

Bestar í kvöld vöru Alex sem skoraði 28 stig, 11 stoðsendingar og 7 fráköst. Anna María sem ætlaði sér ekki að tapa leik númer 500 á ferlinum og Birna sem átti frábæran seinni hálfleik. Þær skoruðu 19 stig hvor, Anna María reif niður 18 fráköst!! og setti niður 3 þrista úr 6 tilraunum. Birna skoraði eins og áður sagði 19 stig og tók 13 fráköst. Bryndís, Svava og Rannveig skoruðu 6 stig og María Ben 5. Myndir úr leiknum koma inn í fyrramálið..           Tölfræði_úr_leiknum.

Næsti leikur er á miðvikudag kl 19.15 og allir í Sláturhúsið og þá meina ég allir:)