Keflavík sigraði Grindavík í kvöld
Keflavík er áfram taplaus í Iceland Express-deildinni eftir sigur á Grindavík í kvöld. Ekki var boðið upp á mikinn varnaleik eins og lokatölur bera með sér en leikurinn endaði 101-108. Bæði lið fengu mikið af opnum skotum sem þau settu niður. Keflavík náði í byrjun 10 stiga forustu og virtist sem Zlatko væri vel með á nótunum eins og í síðustu heimsókn í Grindavík. Gunnar Stef. kom öflugur af beknum og setti niður 3 þrista úr þremur tilraunum. Grindavík náði þó góðum kafla þriðja leikhluta og komst yfir. Keflavík var ekki að spila vel á þeim kafla en átti þó góðan sprett rétt fyrir hlé. Maggi Gunn. setti niður þrist og AJ stal boltanum og skoraði 2 stig og fékk víti að auki. Staðan í hálfleik var 52-59 fyrir Keflavík.
Seinni hálfleikur byrjaði af miklum krafti og Grindvíkingar náðu góðum kafla og náðu forustu með góðum leik Jeremiah Johnson. Johnson virtist geta skorað þegar hann vildi og labbi hvað eftir annað í gegnum vörn Keflavíkur. Staðan eftir þriðja leikhluta 83-79 fyrir Grindavík. Í fjórða leikhluta fór Keflavík að spila vörn og náði að stoppa Johnson. Sverrir var öflugur í vörn og Maggi og AJ settu niður mikilvæg stig á lokakaflanum. Sverrir klikkaði reyndar þrisvar sinnum í röð í restina á leiknum, einn undir körfunni. Eitthvað sem er gerist ekki oft hjá þessum frábæra leikmanni. Það kom ekki að sök því sigur Keflavíkur var í höfn eftir góðan endasprett okkar manna.
Leikurinn var ágæt skemmtun, en liðið á helling inni. Vörnin var alls ekki góð fyrir utan fjórða leikhluta en sóknin virkaði vel allan leikinn. AJ átti góðan leik að vanda, skoraði 30 stig, reif niður 14 fráköst og setti niður 6 af 7 vítum. Maggi kom næstur í stigaskori með 19 stig, 3 þrista og öll 4 vítin sín ofan í. Zlatko skilaði sínu og átti fínar rispur og skoraði 18 stig og tók 7 fráköst. Gunnar Einarson er aftur farinn að sína sitt rétta andlit og hefur átt góða leiki að undanföru. Gunnar skoraði 16 stig. Gunnar Stef. kom næstur með 9 stig og öll úr þriggja stiga körfum. Arnar skoraði 7 stig, Jonni sem hafði hægt um sig skoraði 5 stig og Halldór sem átti góðan mínutur í leiknum skoraði 2 stig eins og varnarjaxlin Sverrir Þór.
Mikilvægur sigur í höfn í toppbaráttunni og næsti leikur er strax á sunnudag á móti Snæfelli. Sá leikur er frestaður leikur úr annari umferð.