Keflavík sigraði Grindavík í spennandi leik
Keflavík sigraði Grindavík í kvöld í Reykjanesmótinu 78-77. Leikurinn var jafn fram á lokasekundu en Arnar Freyr skoraði sigurkörfuna þegar 5 sekundur voru eftir. Magnús Þór Gunnarsson átti mjög góðan leik í kvöld og skoraði 16 stig, en stigahæstur var Jason Kalsow með 18 stig. Zlatko skoraði 15 stig og tók 9 fráköst og Arnar Freyr 11 stig og varð með 5 stoðsendingar. Umfjöllun_um_leikinn_vf.is
Næsti leikur er á miðvikudag á móti Stjörnunni hér í Keflavík og hefst leikurinn kl.19.15.