Keflavík sigraði Hauka, Anna María með sigurkörfuna á loka sekúndum leiksins.
Keflavík sigraði Hauka í 1.deild kvenna í dag, leikurinn var sýndur beint í sjónvarpinu. Það tók leikmenn nokkrar mínútur að koma sér inn í leikinn, en staðan var 11-19 fyrir Keflavík eftir fyrsta leikhluta. Bryndís Guðmundsdóttir sá að mestu um stigaskor í byrjun leiks en aðrir leikmenn voru frekar mistækar. Haukastelpur komust betur inn í leikinn í öðrum leikhluta og gekk Keflavík erfiðlega að stöðva Ebony Shaw, en hún er feikna sterkur leikmaður. Haukar skoruðu 21 stig á móti 10 Keflavíkinga og staðan í hálfleik 32-29. Athygli vakti að Birna Valgarðs. var ekki komin blað þegar þarna var komið við sögu. Það átti heldur betur eftir að breytast því hún skoraði 17 stig í seinni hálfleik og meðal annas 3 þriggja stiga körfur úr 5 tilraunum(60 % nýtting). Í seinni hálfleik skiptust liðin á að hafa forustu, en sigurkörfuna í leiknum skoraði Anna María þegar 2 sekúndur voru eftir af leiknum. Mikilvægur sigur í höfn en óþarflega erfiður. Haukar tóku td. 26 sóknarfráköst á móti 15 hjá Keflavík og 49 í heild á móti 33 hjá Keflavík. Þannig fengu Haukar oft 2 til 3 tilraunir í hverji sókn.
Stigahæstar í dag voru þær: Birna Valgarðsdóttir 17 stig, Alex 14 stig og þær Bryndís og Anna María með 13 stig hvor.
Það var samt afar mikilvægt að vinna þennan leik og Keflavík því með 4 stiga forustu á Grindavík á toppnum. Keflavík á eftir að spila 3 leiki, ÍS í Keflavík á miðvikudag, Grindavík í Keflavík viku þar á eftir og svo gegn KR á útivelli 9 mars.
Staðan í deildinni og tölfræði úr leiknum hér.
1. | Keflavík | 17 | 14 | 0 | 3 | 1364:1071 | 28 |
2. | Grindavík | 17 | 12 | 0 | 5 | 1054:1015 | 24 |
3. | ÍS | 17 | 10 | 0 | 7 | 1101:1028 | 20 |
4. | Haukar | 17 | 8 | 0 | 9 | 1133:1183 | 16 |
5. | Njarðvík | 17 | 5 | 0 | 12 | 1024:1118 | 10 |
6. | KR | 17 | 2 | 0 | 15 | 992:1253 | 4 |