Fréttir

Körfubolti | 17. febrúar 2005

Keflavík sigraði í Grindavík í miklum stigaleik

Keflavík sigraði Grindavík í kvöld í 18 umferð Intersportdeildar 92-109. Keflavík er því með 30 stig í toppnum, Snæfell er með 28 stig eftir að hafa unnið Njarðvík í framlengdum leik 88-84. Njarðvík og Fjölnir eru svo þar á eftir með 24 stig.

Leikurinn í kvöld var hin mesta skemmtun frá upphafi til enda og stuðningsmenn Keflavíkur sem voru margir, fengu mikið fyrir peninginn. Keflavíkingar byrjuðu með látum og voru komnir í 4-17 eftir nokkrar mínutur og flest stigin skoruð eftir gegnumbrot. Grindvíkingar tóku leikhlé og náðu að stoppa í götinn í vörninni og þar að auki fór Jeffrey í gang og skoraði 3 þrista í röð. Miklar sveiflur í gangi og Grindavík náði að jafna 17-17, en lokatölur í fysta leikhluta 23-26.

Annar leikhluti var í meira lagi spennandi og skiftust liðin á að hafa forustu og sáust tölur eins og 37-37, 41-44 og 50-47. Sverrir var að spila góða vörn á Jeffrey sem fékk svo sína 4 villu í leikhlutanum og Sverrir 3 villu sína. Svæðisvörnin virtist ekki vera að virka á þessum kafla en Maggi hélt okkur inn í leiknum með góðri 3 stigahittni.´

Í þriðja leikluta fékk Maggi sína 4 villu og hvíldi að mestu, en Keflavík á mikið af góðum leikmönnum og af bekknum mætti Elentínus nokkur og spilaði strákurinn fanta vel. Ekki nóg með að hann spilaði góða vörn heldur reif hann niður sóknarfráköst og skorði nokkra miklivægar körfur bæði í þriðja og fjórðaleikhluta. Sverrir skoraði einnig 2 þriggja í röð og staðan 77-81 eftir þriðja leikhluta.

Í lokaleiklutanum héldu Keflvík engin bönd og Elli, Sverri, Arnar og Nick héldu áfram að spila mjög vel. Staðan þegar 6 mínutur voru eftir 85-92 og góður kafli Keflavíkur breyti stöðunni í 90-100. Á lokakaflanum skoraði Keflavík svo 9 stig á móti 2 frá Grindavík og lokastaðan eins og fyrr sagði 92-109.

Eins og í góðu liði voru margir leikmenn að spila vel í kvöld. Nick lék vel allann leikinn fullur sjálftrausts og kórónaði góðan leik með fallegri troðslu á lokamínutu. Sverrir er greinilega kominn í sitt besta form, var hreint frábær. Hann spilar alltaf góða vörn en í kvöld heldu honum engin bönd og skoraði hann úr mörgum gegnum brotum ásamt þriggja stiga körfum. Elli var líka að spila einn sinn besta leik í vetur, góð vörn, mikil barátta og mikilvægar körfur. Tony var að skila sína og var mun betri í kvöld heldur en í síðustu leikjum, meiri barátta í honum. Arnar stjórnaði leiknum vel, ásamt því að ógna vel og sækja mikið að körfunni. Maggi skorði margar fallegar þriggja stiga körfur og sumar með varnarmann í andlitinu. Gunni E. hafði hægt um sig í leiknum að þessu sinni og gott að eiga hann inni.

Í heild er hægt að segja að liðið hafi leikið vel og bekkurinn frábærlega. Maður leiksins að mati heimasíðunar SVERRIR ÞÓR.

Lokasekúndur úr leiknum hér.             Tölfræði úr leiknum.