Fréttir

Körfubolti | 5. nóvember 2003

Keflavík sigraði Ovarense 113-99 í mögnuðum leik í fyrstu umferð Bikarkeppni Evrópu

Það fór allt á besta veg í Sláturhúsinu við Sunnubraut í kvöld þegar efsta lið portúgölsku deildarinnar, Ovarense, mætti Íslands- og Bikarmeisturum Keflavíkur í fyrstu umferð Bikarkeppni Evrópu. Portúgalarnir eru stórir og stæðilegir og voru kannski full sigurvissir í upphafi leiks, áttu ekki von á þessu öfluga stórskotaliði Keflavíkur. Eða eins og Falur þjálfari og leikstjórnandi Harðarson sagði í viðtali á RÚV "ef þú berð ekki virðingu fyrir einhverju, þá getur það hefnt sín" og átti þá við að Portúgalarnir hafi ekki borið virðingu fyrir Keflavík og hlotið grimmilega refsingu fyrir.

Smá stress einkenndi fyrstu mínútuna hjá Kef, enda engin furða, en það var Falur sem tók af skarið og bombaði niður þristi "from downtown" eins og stundum er sagt. Í hönd fór glæsikafli hjá okkar mönnum sem náðu 24-14 forskoti í fyrsta leikhluta, ekki síst fyrir frábæran sóknarleik Gunna Einars og Magga. Grunnurinn að sigrinum var lagður í fyrsta leikhluta.

Þessi forysta dugði út allan leikinn þó hún hafi rokkað töluvert, fór mest upp í 18 stig í stöðunni 91-73, en efti slæman kafla í kjölfarið fór hún niður í aðeins sex stig, 94-88. Þá hafði Ovarense sett 15 stig gegn 3, flest þeirra setti trukkurinn Michael Wilson sem er gríðarlega mikill burðum og erfiður viðureignar undir körfunni.

En á þeim kafla sem forystan var mest fór Keflavíkurliðið algerlega á kostum, Maggi (5), Gunni (4) og Falur (3)dúndruðu niður þristum og Derrick og Nick voru öflugir undir körfunum. Alls hitti Keflavík úr 13 af 29 3ja stiga skotum, en það er 45% hittni sem er einfaldlega frábært.

Keflavík hafði keyrt mikið á byrjunarliðinu, þó 9 leikmenn hafi komið við sögu, og þegar munurinn hafði minnkaði í sex stig, og um 5 mínútur eftir, þá voru lykilmenn farnir að þreytast og útlitið ekki bjart. En þá tók Guðjón leikhlé og setti þá Sverrir Þór og Hjört inn óþreytta. Þetta skipti sköpum og við náðum yfirhöndinni á ný. Sverrir skoraði afar mikilvæga körfu eftir innkomuna, spjaldið oní, og munurinn fór aftur upp í 8 stig, 96-88. Siðan hertist vörnin aftur með ferskum leggjum og við náðum að stela boltanum og keyra aftur upp hraðan.

Eftirleikurinn var auðveldur, Portúgalarnir játuðu sig sigraða, og lokastaðan var 113-99 í hreint stórkostlegum og skemmtilegum körfuboltaleik. Allt gekk upp, eins og áður sagði, stemmingin frábær, 700 áhorfendur í banastuði og hvöttu látlaust allan tímann, trommararnir flottastir, glæsileg ljósakynning og alles. Hera var glæsileg í hálfleik, mikill listamaður þar á ferð, frábær söngkona. Hún var farin að taka undir "áfram Keflavík" hrópin í lok leiksins. Arni heiðursgestur og bæjarstjóri Sigfússon var glaður og reifur með sína menn. Sigur í fyrstu umfrerð Evrópukeppninar var staðreynd, enda uppskera menn eins og þeir sá. Ovarense voru sigurvissir, en Keflvíkingar börðust með hjartanu.

Þeir félagar Nick og Derrick áttu báðir ljómandi leik og lék Nick tvímælalaust sinn besta leik frá komu hans til Keflavíkur, og Derrick hitti vel af 3ja til 4ra metra færum. Hjá Ovarense var Wilson (nr. 14) yfirburðamaður og illviðráðanlegur undir körfunum. Hann skoraði 30 stig og hirti 15 fráköst. Samt var hann ömurlegur í vítaskotunum, hitti aðeins úr 2 af 14!!. Minnti á Shaq eða Sandy Anderson. Morales (nr. 13) var einnig öflugur inní teignum og skoraði 21 stig og tók 8 fráköst. Jamie Silva (nr. 4) var öflugasta skyttan og setti 20 stig, mikið úr þristum, og átti 6 stoðsendingar. Herb Jones, sem á glæstan ferill að baki, var ekki svipur hjá sjón og skoraði aðeins 6 stig í leiknum.

Hjá Keflavík voru helstu tölurnar þessar:

  • Nick 30 stig / 13 fráköst / 3 varin skot
  • Derrick 26 stig / 9 fráköst / 6 stoðsendingar
  • Gunni Einars 21 stig / 7 stoðsendingar / 8 fráköst / 4 af 6 í 3ja (hreint magnaður leikur hjá Gunna)
  • Magnús 19 stig / 6 stoðsendingar / 5 af 9 í þriggja (setti upp frábæra sýningu í 3ja leikhluta)
  • Falur 13 stig / 4 stoðsendingar / 4 stolnir boltar (stjórnaði liðinu eins og herforingi)
  • Sverrir Þór 4 stig / 100% nýting í skotum og vítum (barðist eins og ljón í vörninni og setti afar mikilvæga körfu)
  • Jonni 4 frák / 3 stoðsendingar á 13 mín (fékk 5 villur)
  • Hjörtur 3 frák / 2 stoðs á 13 mín (var mistækur í fyrri hluta en "solid" í restina)
  • Halldór lék í 2 mín / tók 1 frákast og safnaði í reynslubankann
  • Arnar Freyr var á bekknum en bíður færis . . .
  • Alls hitti Keflavík úr 29 af 43 2ja stiga skotum sem er 67% nýting
  • 13 af 29 3ja stiga skotum fóru oní - alls 45% nýting
  • Frákastabaráttan fór 44-37 fyrir Keflavík sem má kallast ótrúlegt og lýsir baráttunni
  • Eini neikvæði punkturinn voru of margir tapaðir boltar, alls 24 á móti 14 hjá Ovarense

Tölur úr leiknum má sjá hér.

En heilt yfir, frábær leikur og frábær umgjörð - Til hamingju Keflavík með að komast á kortið í Evrópu!