Keflavík sigraði Skallagrím, tölfræði
Keflavík sigraði Skallagrím í kvöld í miklum stiga og villuleik. Keflavík vann leikinn 105-96, en staðan í hálfleik var 54-46 fyrir heimamenn. Stigahæstir Keflvíkinga voru Jón Nordal sem átti frábæran leik, en Jonni skoraði 24 stig og tók 9 fráköst. Næstur var AJ Moye með 22 stig, Gunnar Stef skoraði 11 og Gunnar E og Zlatko með 9 stig. Stigahæstir hjá Skallagrím voru Jovan 26, Manker 23 og Dimitar með 15. Meira um leikinn síðar.....
Keflavíkur tölfræði Keflvíkur tölfræði heitir réttu nafni smartstat og er það sem við notum á heimaleikjum Keflavíkur. Smartstat er það forrit sem notað er öllum fiba keppnum og er hér fært upp í pdf skjalli. Við ætlum að reyna færa það inn á heimasíðuna alltaf strax eftir leik.