Fréttir

Körfubolti | 7. apríl 2005

Keflavík sigraði Snæfell í miklum spennuleik.

Keflavík er komið yfir 2-1 í einvígi tveggja bestu liða um Íslandsbikarinn. Keflavíkingar fóru heldur rólega af stað í leiknum og fékk Snæfell of mikinn frið í sókninni.  Sóknarleikur Keflavíkinga var frekar ráðlaus og Nick sá eini sem var að finna sig og skoraði 2 þriggja stiga körfur í leikhlutanum og hélt Keflavík inni í leiknum. Maggi Gunn. kominn með 3 villur og Tony 2. Staðan eftir fyrsta leikhluta 16-20 eftir að Helgi hafði skorað þrist undir lok leikhlutans.

Í öðrum leikhluta fóru hlutirnir að ganga aðeins betur hjá Keflavík og sóknarfráköstin okkar megin. Nick hélt áfram að spila vel og áttu Snæfellingar í mestu basli með að stoppa hann. Að öðru leiti var lítið að ganga upp og villurnar að hlaðast upp okkar megin. Nick skoraði 15 stig í fyrrihálfleik en Hlynur sem var einn og óvaldaður undir körfunni skoraði síðustu körfuna fyrir hlé og jafnaði leikinn 39-39. Flestir á því máli að Keflavík ætti mikið inni og fengið mikið af ódýrum villum í hálfleiknum.

Keflavík kom líka sterkari til leiks í eftir hlé og villur fóru að jafnast. Tony sem hafði haft hægt um sig fór að keyra upp að körfunni eins og honum einum er lagið. Það hefur oft verið sagt um hann að ef honum langar til að skora þá gerir hann það. Vörnin hjá gestunum var þó góð en villuvandræði fóru að segja til sín enda fastir fyrir. Keflavík náði 3-7 stiga forustu í leiknum þó Snæfell hafði aldrei verið langt undan og skoruðu til að mynda 4 stig í röð eftir að brotið var á Magna í 3 stiga skoti. Clemmons sem hafði spilað vel fyrir Snæfell náði sér í 4 villuna og fór á bekkinn. Tony átti auðveldar um vik og skoraði 8 stig í röð og tók við af Nick sem tók upp á því að misnota nokkur skot. Staðan eftir þriðja leikhluta 63-62 og allt í járnum.

Síðasti fjórðungur var heldur betur fjörugur og eins reyndar allur leikurinn. Tony hélt áfram að keyra upp að körfunni og í eitt skiptið eftir að hafa keyrt upp allan völlin sjálfur. Hlynur sem ekki þarf oft að hafa áhyggjur af villu vandræðum fékk sína 5 villu. Hlynur sem er frábær körfuboltamaður kemst stundum upp með ansi fasta vörn svo ekki sé meira sagt.

Seinustu mín. leiksins voru heldur betur dramatískar.  Keflavík er yfir 83-80, Siggi keyrir upp völlinn stoppar við 3 stigalínuna og hittir.  Staðan 83-83. Allt vitlaust í húsinu og áhorfendur staðnir á fætur. Brotið á Tony í næstu sókn Keflavíkur, og annað vítið ofaní.  Staðan 84-83 og Snæfell fer í sókn þegar 14 sek. eru eftir tapa boltanum og brjóta á Sverrir sem fer á vítalínuna og skorar úr báðum.Gríðalega mikilvægur sigur í höfn.

Jafn leikur, mikil barátta og flottar troðslur frá Cleommons og Nick og allt þetta í beinni á Sýn. Frábær auglýsing fyrir körfuna, enda að mætast tvö frábær lið.

Keflavík á ennþá mikið inni og ekki að spila sinn besta leik. Nick og Jonni bestir í fyrri hálfleik og Tony og Sverrir í seinni hálfleik. Stigahæstir í kvöld voru Tony sem spilaði frábærlega í seinni hálfleik, 30 stig og 10 fráköst. Nick sem átti fyrri hálfleikinn, 25 stig og þar af 4 þriggja og 17 fráköst. Sverrir með 13 stig og 2 af vítalínunni á lokasek. Jonni skoraði 8 stig, Arnar og Gunni  E. 4 stig og Davíð 2 stig. Maggi Gunn. hafði hægt um sig enda í strangri gæslu.

Það er ótrúlega gaman fyrir okkur sem stöndum í þessu að sjá húsið fullt af áhorfendum en þannig var það í kvöld. Stuðningsmenn og konur Keflavíkur fjölmenntu í húsið til að styðja sína menn og héld ég að allir hafi geta farið glaðir heim. Stuðningsmenn og konur Snæfels fá líka stórt prik fyrir að mæta og styðja sína menn.  Næst er það Stykkishólmurinn og þangað munu við Keflavíkingar fjölmenna enda getum við tryggt okkur þriðja Íslandsmeistaratitilinn í röð.  Áfram Keflavík.

Anthony Glover frábær í seinni hálfleik.