Keflavík spáð fyrsta og öðru sæti
Hin árlega spá forráðamanna, þjálfara og fyrirliða var kynnt í dag. Þar kom í ljós að flestir telja að Keflavíkurstúlkur muni verða efstar í vetur, en hins vegar eru menn almennt á því að Njarðvík verði sterkara en Keflavík í karlaboltanum. Þetta má telja eðlilega spá miðað við gang mála undanfarnar vikur. Stelpurnar munu fá harða keppni frá ÍS og Grindavík, kannski líka Haukum, en töluvert er háð því hvað gerist í Kanamálum liðanna. Okkar lið er ungt og væri aldeilis frábært ef þær ná að fylgja eftir góðum árangri liðinna ára, enda er Keflavík Íslandsmeistari síðustu tveggja ára.
Íslands-, bikar- og Norðurlandameisturum Keflavíkur er spáð öðru sæti í Intersport deildinni. Reyndar kemur ekki í ljós í þessari spá hvort átt er við deildarkeppnina eða Íslandsmótið, en það skiptir kannski ekki öllu máli. Mönnum sýnist að fjögur lið munu skera sig úr í toppbaráttunni, en það eru Suðurnesjaliðin þrjú og Snæfell. Heimasíðan fellst á þessa skoðun, telur hana eðlilega miðað við liðsskipan og gang mála undanfarnar vikur. Engum þarf að koma á óvart að Njarðvík er spáð efsta sætinu, enda gríðarsterkt byrjunarlið þar á ferð, ekki síst ef Brenton helst heill. Okkar menn voru langt á eftir Njarðvík í síðasta leik, eins og menn muna, en telja verður líklegt að liðið verði afar sterkt í vetur. Við eigum að vísu eftir að bæta við okkur leikmanni og vonandi reynist hann vel, það mun tíminn leiða í ljós.
Keflvíkingar horfa fram veginn af tilhlökkun við að takast á við verkefni vetrarins. Markmiðin eru klár, þau eru að verja stóru titlana, að halda áfram að vera Íslands- og bikarmeistarar. Ekki síður verður lögð ofuráhersla á Evrópukeppnina, þar vilja menn komast upp úr riðlinum og helst komast lengra en á síðasta ári.