Keflavík spáð toppsæti bæði karla og kvenna
Keflavíkurliðunum var í dag spáð tvöföldum sigri á Íslandsmótum vetrarins í spá fyrirliða, þjálfara og forráðamanna en spáin var tilkynnt á blaðamannafundi í húsakynnum Intersports í dag. Bæði liðin eiga titil að verja frá því vor. Keflavík fékk 410 stig í spá fyrir Intersportdeild karla og nánast fullt hús, 105 stig af 108, í spá fyrir 1. deild kvenna. Nýliðum deildanna, KFÍ og Þór í INtersportdeild karla og ÍR í 1. deild kvenna, er hinsvegar öllum þremur spáð falli úr deildunum næsta vor.
Spáin fyrir Intersportdeild karla 2003-2004
1. Keflavík 410 stig
2. Grindavík 378
3. KR 346
4. Njarðvík 314
5. Haukar 299
6. Snæfell 235
7. Tindastóll 228
8. Breiðablik 138
Þessi lið komast ekki í úrslitakeppnina:
9. ÍR 131
10. Hamar 129
11. KFÍ 127
12. Þór Þorlákshöfn 69
Spáin fyrir 1. deild kvenna 2003-2004
1. Keflavík 105 stig
2. ÍS 84
3. Grindavík 60
4. KR 54
Þessi lið komast ekki í úrslitakeppnina:
5. Njarðvík 39
6. ÍR 27
Þess má til gamans geta að í fyrra var okkur einnig spáð tvöföldum sigri og sú spá rættist. Nú er bara spurning hvort okkar stúlkum og strákum takist að endurtaka leikinn . . . ?