Keflavík tapaði fyrir Haukum 74-84
Fyrsti leikur tvímenninganna Nicks og Derricks var afar slakur. En fall er fararheill segir máltækið. Liðið okkar náði aldrei neinum takti gegn ágætlega spilandi Haukaliði. Leikurinn var þó í járnum framan af og Keflavík leiddi með einu stigi fyrir upphaf síðasta leikhluta. En sóknarleikurinn var stirður og greinilegt að menn vissu ekki hvað átti að gerast. Enda gengu Haukar á lagið og unnu 10 stiga sigur, 84-74.
Heilt yfir var leikur okkar manna afar slakur, en Halldór Halldórsson átti þó góða innkomu og nýtti vel sitt tækifæri.
Kanarnir náðu sér ekki á strik, Nick hitti illa og Derrick virkaði dálítið óöruggur. En þeir fá góðan tíma til að læra inn á meðherja sína og aðlagast liðinu. Næsti leikur er gegn Njarðvík á mánudaginn. Ef sá leikur vinnst, þá leikum við gegn Haukum í úrslitum Reykjanessmótsins. Ef leikurinn tapast, þá þarf að taka upp reiknivélar til að úrskurða hver leikur gegn Haukum, þ.e.a.s. ef Grindavík vinnur Breiðablik.