Fréttir

Körfubolti | 19. október 2003

Keflavík tapaði fyrir ÍR í skrípaleik, 107-111

Keflvíkingum hefur oft gengið illa í Seljaskóla á undanförnum árum og töpuðu t.d. báðum leikjum sínum þar í fyrra. Engin breyting varð þar á í kvöld. Okkar menn mættu illa undirbúnir til leiks og virtust ekki eiga von á mikilli mótspyrnu. En ÍR-ingar voru hins vegar baráttuglaðir frá fyrstu mínútu, ákveðnir í að selja sig dýrt. Og þeir náðu strax forystunni, héldu henni yfirleitt í svona 5-12 stigum og leiddu í hálfleik 62-51. Keflavík hélt áfram uppteknum hætti í seinni hálfleik en með smá vott af baráttu náðu þeir að jafna og komast eitt stig yfir í stöðunni 95-94. Eftir það var leikurinn lengst af í járnum, en í lokin voru ÍR-ingar, með Eirík Önundarson í fararbroddi, ákveðnari og unnu verðskuldaðan sigur, 111-107.

Leikur okkar manna var arfaslakur og var vörnin oft eins og gatasigti. Ekki náðist upp stemming og okkar menn létu mótlætið fara óþarflega mikið í taugarnar á sér og uppskáru 5 (!) tæknivillur í leiknum Þar af fékk Jonni tværi og var honum vikið úr húsi þegar í fyrri hálfleik. Derrick Allen var yfirburðamaður í Keflavíkurliðinu, barðist vel og skoraði grimmt undir körfunum, alls 40 stig, reif niður 15 fráköst og skoraði úr 14 af 15 vítum.. Aðrir voru frekar slakir, þó átti Magnús Gunnarsson góða spretti í seinni hálfleik (20 stig) og Falur hitti ágætlega (3 þristar, 13 stig). Nick skoraði 17 stig, hirti 12 fráköst, átti 9 stoðsendingar, en tapaði boltanum 7 sinnum. Hann lék einnig ágæta vörn gegn ÍR-Kananum se skoraði aðeins 12 stig. Ekkert kapp virtist hins vegar vera lagt á að stöðva Eirík Önundarson sem skoraði að vild, setti alls 45 stig í leiknum.

Dómararnir, Rögnvaldur og Karl, voru skelfilegir í leiknum og misstu tökin strax í upphafi. Sem dæmi má nefna að dæmdar voru 8 tæknivillur, og 6 leikmenn þurftu að yfirgefa völlinn, 5 fengu fimm villur og Jonni tvö tæknivíti. Afleiðingar slakrar dómgæslu voru þær að meira og minna allir, leikmenn, þjálfarar og áhorfendur beggja félaga, voru sífellt að röfla yfir dómgæslunni og ekkert vit varð í leiknum, t.d. voru dæmdar 64 villur og 74 (!!!) vítaskot, Keflavík fékk 27 og ÍR 47. Aðrar eins tölur eru fáséðar.

Leikurinn var annars frekar lélegur allan tímann, engar varnir og tilviljanakenndur sóknarleikur. Enda fór hann að mestu fram á vítalínunni. Hálfgerður skrípaleikur. En ÍR-ingar eiga þó hrós skilið fyrir góða baráttu.

Hér má sjá tölur úr leiknum.

Vonandi láta okkar menn þetta sér að kenningu verða, því án baráttu og rétts hugarfars vinnast ekki leikir og skiptir þá engu að vera sterkari á pappírunum. Okkar menn geta svo miklu miklu meira og þurfa að komast í gírinn aftur sem fyrst.