Keflavík tapaði naumt fyrir Probuild Lions í Hollandi
Keflavík sem var yfir mest allann leikinn, tapaði fyrsta leik sínum í æfingarferð sinni til Hollands fyrir liði Probuild Lions 75-73. Keflavík var með boltann í stöðunni 73-73 og 24 sekúndur eftir og ætluðu að taka síðasta skotið, en misstu boltann og þær skoruðu þegar 10 sekúndur voru eftir. Að sögn Sverrris Þór þjálfara liðsins var margt gott í leik liðsins þrátt fyrir tap.
Stigahæstar í leiknum í gær voru Reshea með 14, Birna 14,María Ben 13og Anna María 11. Aðrar sem skoruðu voru Ingibjörg 5, Rannveig 5, Bryndís 4, Halldóra 4 og Margét Kara 3.
Næsti leikur liðsins er á morgun laugardag á móti Meisturunum frá Luxemburg, Musel Pikes, en liðin leika tvo leiki. Síðan spila þær við Hollensku meistarana Den Helder, en með því liði leikur Alda Leif Jónsdóttir.
Annas er allt gott að liðinu að frétta af liðinu og aðbúnaður góður.