Keflavík tapar með fjórum stigum gegn sterku liði finnsku meistaranna
Finnsku meistarnir, Kouvot, lögðu Íslandsmeistarana frá Keflavík í æsispennandi leik í kvöld í Meistaramóti Norðurlanda í Oslo í kvöld. Leikurinn var spennandi frá upphafi, en Keflavík byrjaði sérlega vel. Í raun lék Keflavíkurliðið vel mest allan leiktímann og skoraði fleiri stig en Finnarnir í þremur fjórðungum. Lokatölur voru 75-80, en á síðustu mínútunum náðu Finnarnir að setja niður tvo þrista meðan ekkert datt hjá okkar mönnum.
Allt annað var að sjá til liðsins en í fyrsta leiknum gegn Bærum. Finnarnir eru mörgum klössum fyrir ofan Norðmennina sagði Sigurður þjálfari sem var ánægður með stígandann í liðinu þótt hann væri óánægður með ósigurinn. Hann sagði að þessi leikur hefði auðveldlega dugað til sigurs gegn Bærum.
Glover var geysisterkur í leiknum, en Miggins virðist ekki finna sig. Annars léku flestir prýðilega í kvöld. Nú er bara að halda áfram á þessari braut og vinna tvo síðustu leikina í mótinu. Tölur um stigahæstu menn o.fl. er að finna á heimasíðu mótsins (þegar hún verður uppfærð).