Fréttir

Körfubolti | 14. janúar 2004

Keflavík tekur á móti ÍR - fyrsti leikur Fannars

Það verður gaman fyrir stuðningsmenn Keflavíkur að bregða sér í Sláturhúsið við Sunnubraut í kvöld þegar ÍR kemur í heimsókn. Reyndar er tvöföld ástæða til að hlakka til þessa leiks. Í fyrsta lagi á Keflavíkurliðið harma að hefna þar sem við töpuðum í skelfilegum leik í Seljaskóla í haust. Reyndar var þetta annar af aðeins tveimur sigrum ÍR-inga í deildinni hingað til. Segja má að ÍR hafi valdið stuðningsmönnum sínum vonbrigðum í vetur, þar sem flestir gerðu ráð fyrir þeim í baráttunni um úrslitakeppnina, en ekki í botnbaráttunni. Vissulega hafa þeir verið óheppnir með veikindi og meiðsli, t.d. datt Eiríkur Önundarson út í langan tíma eftir stórleik hans í sigrinum gegn Keflavík. Gera má ráð fyrir ÍR-ingum grimmum þar sem þeir verða að fara að vinna leiki ætli þeir sér að tryggja áframhaldandi veru sína í deildinni.

Hin ástæðan fyrir tillhlökkun er sú að baráttujaxlinn stóri og sterki, Fannar Ólafsson, er kominn aftur til Keflavíkur og leikur sinn fyrsta leik fyrir félagið í langan tíma. Fannar hefur vaxið enn frekar að burðum og kappið og baráttan er til staðar sem fyrr. Fannar hefur ávallt verið í uppáhaldi hjá áhorfendum og mun hann styrkja okkar lið í þeirri baráttu sem framundan er. Liðið er nú orðið "alvöru" körfuboltalið með fimm hávaxna leikmenn, þar af fjóra um tvo metrana, þá Fannar, Derrick, Nick og Halldór.

Vonandi verða drengirnir á tánum því hver leikur í deildinni er mikilvægur í okkar baráttu um 2. sætið í deildinni.