Keflavík tekur á móti KR í TM-Höllinni
Keflavík tekur á móti Íslandsmeisturum KR í Domino´s deild karla í kvöld en leikurinn fer fram kl. 19.15 í TM-Höllinni. Eftir þrjár umferðir eru KR-ingar taplausir en Keflavíkur hefur sigrað tvo og tapað einum. Leikurinn í kvöld verður forvitnilegur fyrir þær sakir að þetta mun verða fyrsti leikur Michael Craion í TM-Höllinni í öðrum búning en Keflavíkur.
Albert "medium rare" Óskarsson verður við grillið á morgun og mun glóðarsteikja borgara ofan í mannskapinn.
Áfram Keflavík