Keflavík tekur á móti Tindastól í kvöld kl. 19.15 í TM-Höllinni
Keflvíkingar leika fyrsta leik sinn í Lengjubikarnum í kvöld þegar þeir mæta Tindastól kl .19.15 í TM-Höllinni. Keflavíkurliðið er orðið fullskipað á nýjan leik en þeir Michael Craion og Darrel Lewis eru komnir til landsins. Þrátt fyrir að Tindastóll sé í 1. deild er ljóst að um erfiðan leik er að ræða enda sigraði Tindastóll Íslandsmeistara Grindaíkur á föstudag með tæpum 30 stigum á heimavelli.