Fréttir

Körfubolti | 25. september 2004

Keflavík vann 25 stiga sigur á Norrköpping, 112-87

Keflvíkingar eru greinilega á réttri leið í Osló. Fyrst tapaði liðið gegn ekki svo sterku liði heimamanna frá Bærum, síðan beið liðið nauman ósigur gegn afar sterku liði finnsku meistaranna frá Kouvot, og í dag vannst stórsigur á sænska silfurliðinu Norrkööpping Dolphins, 112-87.

Þessi sigur þýðir að Keflavík lendir í 2. eða 3ja sæti riðlakeppninnar, það fer eftir úrslitum leiksins í kvöld milli Bærum og Kouvot. Ef Kouvot sigrar endar Keflavík í öðru sæti og leikur til úrslita á morgun. Ef hins vegar Bærum vinnur þá er Keflavík í 3ja sæti og leikur um bronsið gegn Norrköpping.

Í stuttu máli má segja að leikurinn hafi verið afar góður hjá Keflavík frá fyrstu mínútu. Aðeins einu sinni leiddu Svíarnir, í stöðunni 19-20, en að öðru leyti var leikurinn eign Keflavíkur. Anthony Glover fór á kostum í leiknum, ekki bara við stigaskorun, heldur stal hann boltum, tók fráköst og gerði mikið. Maggi Gunn átti stórkostlega kafla og Jonni var frábær í vörninni. Annars sagði Siggi B, stjórnarmaður og fararstjóri, að allir hefðu skilað hlutverki sínu vel og hann bætti við að Miggins hefði verið þokkalegur.

Tölur úr leiknum munu birtast á þessari síðu, en það verður þó að segjast að Norsararnir hafa ekki verið mjög duglegir við að uppfæra hana. Þarna má þó sjá tölur úr liðnum leikjum.

Nú bíðum við spennt eftir úrslitum kvöldsins, því eins og staðan er núna, þá á Keflavík ennþá möguleika á að sigra á mótinu  . . .