Keflavík vann Ármann 117-39
Eins og menn áttu von á sigraði Keflavík Ármann auðveldlega í seinni hluta 16-liða úrslita Hópbílakeppninnar, munurinn var 78 stig og niðurstaðan 117-39. Í næstu umferð mæta okkar menn Reykjavíkurmeisturum ÍR sem fóru auðveldlega í gegnum Hamar-Selfoss. 8-liða úrslitin verða leikin sunnudaginn 31. okt. og laugardaginn 6. nóv.
Gunnar Stefánsson var stigahæstur í kvöld með 20 stig, annars dreifðist stigaskorið jafnt, Anthony og Halldór tóku 9 fráköst hvor, Sverrir stal 7 boltum og Davíð átti 5 stoðsendingar. Tölur úr leiknum má sjá hér.
Í Hópbílabikarnum er fyrirfram búið að ákveða hvaða lið mætast, Keflavík var "rankað" númer 1 og lék gegn nr. 16, 2 leikur gegn númer 15 og svo koll af kolli. Hér má sjá hvernig keppnin mun spilast.