Keflavík vann auðveldan sigur á Tindastóli, 126-101 - Maggi setti 8 þrista
Leikurin í kvöld var aðeins jafn fyrstu tvær eða þrjár mínúturnar. Clifton Cook byrjaði með flottum langskotum og Stólarnir leiddu 7-4. En komst Keflavíkurhraðlestin á sporið og fór nánast ekki út af því það sem eftir var leiksins. Munurinn fór fljótlega upp í 20 stig, mest í rúm 30 og síðan niður í 15 stig í lok þriðja leikhluta. Eftir þriggja stiga sýningu Magga Gunnars (hann setti 8 af 12 í leiknum, þar af 6 af 7 í seinni hálfleik) jókst munurinn að nýju og endaði í 25 stigum, 126-101.
Þessi leikur var varla meira en létt æfing. Keflavík setti pressuna í gang og hreinlega valtaði yfir Tindastól um miðjan fyrsta leikhluta. Þannig er leiknum best lýst. Tindastóll sá aldrei til sólar og verður að viðurkennast að frammistaða þeirra olli vonbrigðum.
Okkar menn léku á alls oddi, keyrðu upp hraðann og létu boltann ganga vel en slökuðu á inn á milli. Allir léku töluvert og enginn meira en 28 mínútur. Magnús fór á kostum og gerði alls 32 stig og átti auk þess 6 stoðsendingar. Sverrir Þór hirti 9 fráköst og skoraði 12. Nick byrjaði vel og Derrick var góður eins og venjulega. Þeir skoruðu 21 og 29 stig, og hirtu 7 og 9 fráköst. Nick átti svo 6 stoðara og Derrick varði 3 skot. Jonni byrjaði mjög skemmtilega en sótti margar villur. Gunni Stef setti niður 3 þrista og skoraði 11 stig, 5 fráköst og 4 stoðsendingar á 16 mínútum. Allir skiluðu sínu, einungis Falur náði ekki að skora.
Hjá Tindastóli var Nick Boyd langbestur með 27 stig. Cook byrjaði vel en dalaði svo, Friðrik Hreinsson átti góðan sprett í seinni hálfleik og skellti niður 5 þristum. Kristinn Friðriksson var lítið með, aðeins 11 mínútur, og gerði lítið markvert á þeim tíma.
Nú er þessi leikur að baki og ekki borgar sig að ofmetnast af stórum sigri í undanúrslitunum. Andstæðingarnir í úrslitunum á morgun eru Njarðvíkingar og þeir munu ekki láta valta svona yfir sig.