Keflavík vann íR 86-68
Sigur Keflavíkur á ÍR í kvöld var vandræðalaus, án þess þó að leikurinn hafi verið glæsilegur. Forystan byggðist upp hægt og rólega, var 6 stig í hálfleik, 11 stig eftir þrjá leikhluta og 18 stig í lokin. Í stuttu máli má segja að varnarleikurinn hafi verið ágætur, sérstaklega þegar náðist upp stemming í pressuvörninni, en sóknarleikurinn var frekar ómarkviss. Hittnin var slök og til dæmis hittu þeir félagar Glover og Mike aðeins úr 7 af 27 skotum sínum en ljóst má vera að þeir geta mun betur.
Arnar Freyr lék ekki með í kvöld þar sem hann á við meiðsli í baki að stríða, en vonir standa til þess að hann geti hafið æfingar aftur á næstu dögum.
ÍR-liðið var frekar bitlaust, enda vantaði prímus mótor þeirra, Eirík Önundarson, en langbesti maður þeirra var Herbert McCall sem skoraði 17 stig og tók 15 fráköst. Alls tóku reyndar ÍR-ingar 52 fráköst en Keflavík 42 og er eflaust hægt að bæta fráköstin í næstu leikjum. Keflavíkurhraðlestin komst aldrei á sporið almennilega en þeir Glover (16 stig, 10 frák) og Magnús (14 stig) voru iðnastir við stigaskorunina. Annars var Jonni besti maður liðsins í kvöld , barðist vel og tók fráköst, en hefði mátt reyna meira í sókninni, eins og oft áður. Mike lék lítið með en gerði 7 stig, tók 8 fráköst og varði 4 skot.
Framundan eru tveir leikir gegn ÍR í Hópbílakeppninni og svo náttúrulega stórleikurinn í Bikarkeppni Evrópu gegn Reims frá Frakklandi næsta þriðjudag.