Keflavík vann ÍS 77-71 í framlengdum leik
Ekki var hann þrautarlaus, sigur Keflavíkurkvenna á Stúdínum í kvöld í fyrsta leiknum í undanúrslitum Íslandsmótsins. Keflavík hafði frumkvæðið í fyrri hálfleik, en dæmið snerist við í seinni hálfleik. ÍS hafði lengst af tveggja til sex stiga forskot og hvorki gekk né rak í sóknarleik okkar stúlkna. En Anna María og Birna settu stóra þrista til að halda okkur inní leiknum og svo skoraði Alex síðustu tvær körfurnar, þá síðustu með gegnumbroti þegar 10 sekúndur lifðu leiks. Með þeirri körfu jafnaði Keflavík leikinn, 63-63, og Stúdínur höfðu rúmar 10 sek til að gera út um leikinn. Þær náðu að vísu tveimur skotum á þeim tíma, en hvorugt rataði rétta leið svo grípa þurfti til framlengingar.
Alda Leif byrjaði af miklum krafti og skoraði 7 fyrstu stig ÍS-inga sem náðu forskoti. En Keflavík náði tökum á leiknum með góðum varnarleik og seig framúr á lokasprettinum. Síðustu stigin skoraði Rannveig á vítalínunni og niðurstaðan var sex stiga sigur, 77-71. Anna María, Birna og Bryndís voru öflugar í framlengingunni. Hjá ÍS voru þær Alda Leif og Signý mjög sterkar.
Leikur Keflavíkur var frekar kaflaskiptur, vörnin var ágæt, en sóknin slök. Boltinn gekk hægt milli leikmanna og lítið flæði í leiknum. Þær reyndu mikið að keyra upp hraðann en árangurinn var ekki mikill, því mikið var um tapaða bolta. Liðið á töluvert inni og vonandi ná þær að betri tökum á sóknarleiknum fyrir næsta leik sem verður í íþróttahúsi Kennaraháskólans á laugardaginn kl. 17.00.
Það félag sem fyrr sigrar í tveimur leikjum kemst í úrslit gegn sigurvegurum úr viðureign Grindavíkur og Hauka, en Grindavík vann fyrsta leikinn í kvöld með minnsta mögulega mun, einu stigi.