Fréttir

Körfubolti | 6. janúar 2005

Keflavík vann Njarðvík

Keflavík sigraði Njarðvík í 1 deild kvenna með 23 stiga mun, 51-74. Birna Valgarðs. sem hefur sankað að sér verlaunum á síðustu dögum fór fyrir sínu liði og skoraði 24 stig. Keflavík tók frumkvæði strax í byrjun leiks og voru komnar með 11 stiga forskot strax eftir fyrsta leikhluta og staðan í hálfleik 27-37. Keflavík jók munin hægt og þétt í seinni hálfleik með frábæri vörn og áttu Njarðvíkingar í mesta basli með að koma boltanum upp völlinn, en þær töpuðu alls 24 boltum í leiknum.  Reshea Bristol áttu mjög góðan leik og var með þrefalda tvennu, 15 stig, 13 fráköst og 10 stoðsendingar.

Næsti leikur er stórleikur í 8 liða úrslitum Bikarkeppni KKI og Lýsingar, þegar ÍS kemur í heimsókn.  Leikurinn er á Sunnudaginn kl 18.15 og er leikur Keflavíkur og Njarðvíkur svo þar á eftir kl 20.15.

 

 

 

 

 

 

 

                                                                                                                                           Mynd úr leiknum í gær, fengin að láni frá vf.is