Fréttir

Körfubolti | 15. september 2004

Keflavík vann Njarðvík 101-84 í fjörugum leik á Reykjanesmótinu

Suðurnesjarisarnir mættust á Sunnubrautinni í gærkvöld í Reykjanesmótinu. Hvorugt lið var fullmannað vegna landsliðsverkefna, en tefldu þó fram nýjum Könum. Okkar maður, Anthony Glover, átti flottan leik og skoraði 36 stig og tók 15 fráköst. Hann er ekki hávaxinn af miðherja að vera, en afar kraftmikill og lipur, sérlega fjölhæfur leikmaður. Troy Wiley þeirra Njarðvíkinga átti góða spretti en virtist ekki kominn í topp form.

Keflavík byrjaði leikinn betur og fór Gunnar Stefánsson á kostum, hann hitti vel og setti alls 23 stig í leiknum, þar af voru sex þriggja stiga körfur. Keflavík náði góðu forskoti, meðal annars 17-2, og eftir fyrsta leikhluta var staðan 24-12. Í öðrum leikhluta jafnaðist leikurinn og í háfleik leiddu okkar menn með tveimur stigum, 47-45.

Fjótlega í byrjun seinni hálfleiks tóku síðan Keflvíkingar völdin á vellinum, byggðu upp örugga forystu og unnu 17 stiga sigur, 101-84. Halldór Halldórsson átti mjög góðan leik, þótt þriggja stiga hittnin hafi stundum verið betri. Hann skoraði 15, tók 10 fráköst, varði 5 skot og gaf 6 stoðsendingar. Gunni Einars var einnig "solid" að vanda og virðist vera í feyknaformi eins og venjulega. Hann skoraði 12 stig og tók niður 9 fráköst. Anthony Glover byrjaði sérlega vel og virðist vera góður fengur fyrir Íslandsmeistarana

Hér má sjá tölfræðina úr leiknum.

Hjá Njarðvík voru þeir Wiley og Brenton atkvæðamestir, auk Guðmundar Jónssonar sem hitti vel.

Í fyrri leik kvöldsins unnu Haukar öruggan sigur á Grindavík. Keflavík hafði áður leikið gegn Grindavík í Grindavík og tapaði þar með 17 stiga mun. Næsti leikur er gegn Haukum á fimmtudaginn í Njarðvík. Með sigri þar opnast möguleiki á að taka þátt í úrslitaleik mótsins, líklega gegn Grindavík.

.