Keflavík vann Njarðvík í kvennaboltanum 80-55
Keflavíkurliðið er smám saman að komast í eðlilegt horf eftir miklar fjarvistir í síðasta leik. Erla Þorsteinsdóttir er þó enn að jafna sig á lungnabólgunni og var ekki orðin leikhæf. En Birna Valgarðsdóttir er stigin upp úr sínum veikindum og lék með Keflavík að gegn Njarðvík í gær. Kristín er hins vegar enn fjarverandi.
Leikur Keflavíkurliðsins var svona “la la” í fyrri hálfleik, þótt forystan væri til staðar. Í hálfleik var sjö stiga munur, 39-32. En í seinni hálfleik tók Keflavík völdin og lokaði vörninni. Andrea Gaines sem er allt í öllu hjá Njarðvík átti erfiðara um vik og mistökum gestanna fjölgaði. Keflavík náði í kjölfarið og keyra upp hraðan og stemmingin í liðinu óx. Að loknum 3ja leikhluta var munurinn orðinn 13 stig og í síðasta leikhluta var bara eitt lið á vellinum. Leikurinn endaði síðan með 25 stiga mun, 80-55.
Keflavíkurliðið var afar jafnt og skoruðu fimm leikmenn 10 stig eða meira, þær Birna (14), María Ben (10), Rannveig (13), Svava (13) og Anna María (12). Til viðbótar skoruðu þær Bryndís og Marín 8 stig hvor. Ungu stelpurnar eru sérlega sprækar og eru þær Bryndís og María Ben óðum að breytast í "alvöru" leikmenn.
Næstu tveir leikir Keflavíkur eru bikarleikir. Á miðvikudaginn leika stúlkurnar gegn ÍR í 16 liða úrslitum Bikarkeppni KKÍ & Lýsingar og á laugardaginn er úrslitaleikurinn í Hópbílakeppninni gegn KR. Leikir sem verða að vinnast !!