Fréttir

Körfubolti | 19. desember 2002

Keflavík vann Njarðvík örugglega í Bikarkeppni kvenna og mætir Keflavík B í næstu umferð

Það fór eins og svo margir reiknuðu með að Keflavíkurdömur reyndust sterkari en grannar þeirra úr Njarðvíkum í gær, en liðin mættust í fyrstu umferð Bikarkeppninnar í íþróttahúsinu í Njarðvík.

Reyndar hikstaði kvennahraðlestin úr Keflavík fyrstu mínúturnar og lenti undir í byrjun. Njarðvík byrjaði vel og þær settu m.a. niður þrjá þrista á upphafsmínútunum og leiddu mest allan fyrsta leikhlutann. En smám saman náði Keflavík tökum á leiknum og fór að sýna þann körfubolta sem einkennt hefur liðið á yfirstandandi leiktíð.

Vörnin þéttist og hraðinn jókst og var það meira en Njarðvík réð við. Í hálfleik var munurinn 12 stig, 44-32 og fljótlega í byrjun seinni hálfleiks var ljóst að leikurinn var eign Keflavíkur. Í lokin var munurinn 26 stig, 56-82 og yfirburðir Keflavíkurstúlkna voru algerir. Enn einn sigurinn, sá 14. í röðinni, leit dagsins ljós og Keflavík var öryggið uppmálað.

Eins og oftast áður komu allir leikmenn Keflavíkur við sögu og skiluðu sínu hlutverki vel. Sonia Ortega er kannski ekki jafn mikill skorari og aðrir erlendir leikmenn í deildinni, en hún smellpassar í Keflavíkurliðið með frábærum varnarleik og mikilli liðshugsun. Annars áttu flestar góðan leik og kannski má sérstaklega nefna Kristínu Blöndal sem kveikti í liðinu í fyrri hálfleik þegar leikurinn var frekar stirður. Stína átti tvo þrista og tvær góðar keyrslur að körfunni og skoraði 10 stig á stuttum tíma. Eftir það var ekki aftur snúið. Birna og Erla léku einnig vel og Anna María klikkar varla á skoti frekar en fyrri daginn. Enn sem fyrr er það þó liðsheildin frekar en einstakir leikmenn, sem er stjarnan í Keflavíkurliðinu.

Í næstu umferð, 8 liða úrslitum, mætir Keflavíkurliðið B-liði Keflavíkur og verður að telja A-liðið afar sigurstranglegt í þeirri viðureign. Í raun má nú þegar allt að því bóka áframhaldandi veru Keflavíkurliðsins (þ.e. A-liðsins) í undanúrslitum Bikarkeppni KKÍ og Dorítos.

Nú styttist í jólafríið hjá stúlkunum, en áður en að því kemur leika þær fyrsta úrslitaleik leiktíðarinnar gegn KR í Kjörísnum á laugardaginn í Smáranum.

Gaman er að geta þess að leikurinn var nokkuð vel sóttur af áhorfendum sem fengu sýndan prýðis körfubolta frá stelpunum að vanda.