Keflavík vann Njarðvík stórt í síðasta deildarleiknum, 95-54
Fyrri hálfleikurinn í síðasta deildarleiknum var frekar jafn í kvöld. Auður Jónsdóttir setti niður nokkra þrista fyrir Njarðvík og Keflavík náði ekki tökum á leiknum. Helst var það Anna María sem hélt okkur á floti, en hún gerði 16 stig í fyrri hálfleiknum. Staðan að honum loknum var 42-38.
En fljótlega í seinni hálfleik komst hraðlestin á sporið. Stúlkurnar þéttu vörnina og keyrðu stanslaust fram völlinn og skoruðu grimmt. Munurinn jókst jafnt og þétt og í lokinn var hann orðinn 41 stig, 95-54. Seinni hálfleikur hafði farið 53-16.
Allar stúlkurnar léku vel í kvöld, enda minnkaði mótspyrnan hratt eftir því sem á leikinn leið. Stigahæstar voru þær Erla Þ (17), Anna María (16 - öll í fyrri hálfleik), Erla R (13) og María Ben (12). Allar stúlkurnar settu mark sitt á leikinn og boðið var upp á skemmtilegan og hraðan leik af okkar liði.
Að leik loknum var stúlkunum afhendur Deildarbikarinn til varðveislu í eitt ár til viðbótar (mynd frá VF).
Með sigrinum í kvöld lauk deildarkeppninni og unnu Keflavíkurkonur 17 leiki af 20 og urðu urðu Deildarmeistarar með nokkrum yfirburðum. Framundan er nú úrslitakeppnin, en í undanúrslitunum mætir Keflavík Grindavík, en þær hafa leikið vel upp á síðkastið, allt frá því að Kaninn gekk í þeirra herbúðir. Fyrsti leikurinn fer (væntanlega) fram næst komandi mánudag kl. 19.15.