Fréttir

Körfubolti | 14. október 2003

Keflavík vann stórsigur á nýliðum ÍR, 84-48

Það voru ekki blíðar móttökur sem nýliðar ÍR fengu hjá Íslandsmeisturum Keflavíkur í 1. deild kvenna í kvöld. ÍR hefur á að skipa mörgum efnilegum leikmönnum og hefur liðið leikið prýðilega í haust, m.a. lögðu þær KR í fyrstu umferðinni. En í fyrstu heimsókn þeirra í Sláturhúsið fengu þær að kynnast hraða og krafti Keflavíkurliðsins sem var einfaldlega einum klassa betra í kvöld.

Grimmur varnarleikur og hraður sóknarleikur hefur oft verið aðalsmerki Keflavíkur og ljóst er að Hjörtur Harðarson þjálfari leggur mikla áherslu á þessar tvær Keflavíkurdyggðir. Sérstaklega var hraðinn áberandi en drjúgur hluti stiga liðsins kom eftir hraðupphlaup. Getumunur liðanna kom strax í ljós og bilið breikkaði stöðugt eftir því sem á leikinn leið. Allar stúlkurnar komu við sögu og skiluðu hlutverki sínu með prýði. Ekki er ástæða til að nefna einn leikmann öðrum fremur, því liðsheildin var "sterkasti maðurinn" ef svo má að orði komast.

ÍR stúlkur þurfa einna helst að bæta skot sín utan af velli, því margar eru ansi leiknar en skotvissan er ekki mikil, enn sem komið er. En þær eiga örugglega eftir að vinna nokkra góða sigra í vetur. Kaninn þeirra er sterk stelpa, en beitir olnbogum sínum full frjálslega. Í eitt skiptið rakst hún, algerlega óviljandi að vísu, í Erlu Þorsteinsdóttur sem hneig niður, eins og lýst er annars staðar hér á síðunni.