Fréttir

Körfubolti | 22. mars 2004

Keflavík verður að vinna í Sláturhúsinu í kvöld!

Nú er spennan orðin mikil í undanúrslitunum. Menn sáu hvað gerðist í gær hjá Njarðvík og ekki viljum við láta svipað henda okkur í kvöld. Staðreyndin er nefnilega sú að ef lið lendir 0-2 undir, þá eru ansi litlar líkur á sigri. Allt er hægt, vissulega, en það gerist sjaldan. Þess vegna verður Keflavík að vinna í kvöld og opna einvígið upp á gátt að nýju.

Það sást í fyrsta leiknum að Grindvíkingar eru ekki miklir skotmenn, fyrir utan Pál Axel auðvitað, en þeir eru kraftmiklir Kanarnir þrír og keyra vel upp völlinn og inn að körfunni. Nú þurfum við að mæta grimmir og láta þá hafa fyrir hlutunum, því Rogers mun eiga í miklum erfiðleikum með Derrick ef hann fær ekki að liggja á honum allan leikinn. Derrick verður að fá boltann og þá gerast hlutirnir. Eins verða bakverðirnir að vera óragir við að dúndra niður skotum og keyra inn í vörnina, allir saman.

Leikurinn í kvöld snýst um vilja og traust. Heimavöllurinn okkar hefur verið sá sterkasti á landinu um árabil, sannkallað Sláturhús, og nú þurfum við að taka vel á móti Grindjánum í kvöld. Leikurinn hefst kl. 19.15 og má gera ráð fyrir gríðarlegri baráttu.

ÁFRAM KEFLAVÍK!