Keflavík – KR í kvöld: Íslandmeistaratitill kvenna í húfi!
Nú er komið að úrslitastundu á Íslandsmóti kvenna í körfuboltanum. Eftir frábært tímabil hafa Keflavíkurkonur nú þrjú tækifæri til að verða Íslandsmeistarar. Staðan er 2-0 í einvíginu en vinna þarf þrjá leiki, þannig að ekkert er öruggt ennþá. Það voru einmitt KR-stúlkur sem urðu í fyrra fyrstar allra til að vinna 5-leikja seríu eftir að hafa lent 0-2 undir. Þær gerðu það gegn ÍS og hyggjast eflaust endurtaka leikinn í ár.
En Keflavíkurliðið er vel stemmt núna og okkar stúlkur eru staðráðnar að nýta tækifærið sem nú býðst til að landa “þeim stóra”. Liðið hefur leikið vel í úrslitakeppninni og nýtt breidd sína afar vel, en KR þarf meira að keyra á sömu leikmönnum en Keflavík. KR hefur að vísu Jessicu Stomski sem er afar sterk í teignum, en það kom í ljós í síðasta leik að hún á erfitt með að leika 40 mínútur gegn sterkri vörn. Ef Erla og Anna María gefa henni engan frið mun henni líklega þverra máttur þegar líður á leikinn. Þá gæti skapast færi fyrir okkar stelpur að nýta breiddina og úthaldið.
En hver leikur þróast á sinn sérstaka hátt, þannig að ómögulegt er að spá hvað gerist í kvöld. Það eina sem við vitum er að stelpurnar eru klárar í slaginn og þær munu gera sitt besta. Vonandi fjölmenna Keflvíkingar í húsið og hvetja stúlkurnar til dáða, því góð hvatning getur gert gott betra – ÁFRAM KEFLAVÍK!!