Keflavík – Njarðvík í úrslitum: Svakaslagur í vændum!!!
Það hefur aldrei neinn orðið svikinn af alvöru leikjum milli þessara félaga, sama hvernig á stendur. Þegar á hólminn er komið slá hjörtun hratt og metnaðurinn er það mikill að leikmenn og stuðningsmenn gefa allt sem þeir eiga í leikinn. Þess vegna eru þetta skemmtilegustu leikir sem íslenskur körfubolti hefur upp á að bjóða. Og þegar þessi félög mætast í úrslitaleikjum, þá er hátíð í bæ.
Mikið hefur verið rætt og ritað um liðsskipan Njarðvíkinga. Ljóst er að Páll er í leikbanni og verður ekki með, en að öðru leyti er óvissan mikil. Brenton og Brandon eru báðir meiddir, þó gefið hafi verið í skyn að Brandon muni vera klár í slaginn. Ekkert hefur heyrst um Brenton og hugsanlega skýrist það ekki fyrr en á leikdegi hvort hann verður með. Egill veiktist og var það leiðinlegt að heyra, við óskum honum góðs bata. En svo má ekki gleyma því að Njarðvík hefur náð sér í liðsstyrk frá Ameríku, Larry B, sem er tæpir 2m og á að vera fjölhæfur, m.a. leikstjórnandi.
Sem sagt óvissan er töluverð og líklega þjónar engum tilgangi fyrir Keflvíkinga að velta sér uppúr þessu, það eina sem er ljóst, og það hefur einkennt Njarðvík í gegnum tíðina, að nú er stórleikur í vændum og þá munu þeir vera ljóngrimmir og stórhættulegir, sama hverjir hlaupa inn á völlinn, vörnin verður góð og baráttan allsráðandi.
Hjá okkur er lítil óvissa um liðsskipan, við vitum að Falur og Fannar eru meiddir, en aðrir eru heilir. Derrick sneri sig að vísu á æfingu í fyrradag og þurfti smá meðhöndlun, en hann var kominn á ról aftur í gær. Liðið er vel samæft og sóknarleikurinn á að geta rúllað vel frá fyrstu mínútu. Að vísu hafa leikir vetrarins verið mis góðir, en það hefur helst verið skortur á einbeitingu eða baráttu sem stundum hefur orsakað slakan varnarleik. Tvímælalaust var Evrópukeppnin þess valdandi að stundum hefur einbeitingin dottið niður inn á milli, en nú er henni lokið, og menn geta fókuserað algerlega á þetta verkefni, enda um að ræða stærsta einstaka leikinn á árinu!
Líklegt má telja að Njarðvíkingar reyni að loka á Derrick undir körfunni og keyrslur Nick inn í vörnina. Því verða skytturnar að vera tilbúnar að nýta færin sem skapast, ekki síst ef Njarðvík leikur svæðisvörn, sem má telja frekar líklegt, í ljósi aðstæðna. Eins verða menn að hafa hugfast að þótt skyttur Njarðvíkinga, t.d. Brandon og Guðmundur hafi ekki fundið sig í síðasta leik, þá má ekki gefa þeim (eða Brenton, verði hann með) svo mikið sem eitt sekúndubrot til að athafna sig, því þá geta þeir neglt niður nokkrum þristum og komist í stuð og rifið upp stemminguna. Menn verða að passa skytturnar!
Breiddin er meiri Keflavíkurmegin, en ekki er víst að það skipti máli í svona leik, þar sem vel er mögulegt að keyra á 6-7 mönnum einn og einn leik. En ef leikurinn verður erfiður og hraður þá fer þreytan að segja til sín og breiddin að skipta máli.
Aðalatriðið fyrir okkar menn og okkar stuðningsmenn er að leggja sig fram frá fyrstu mínútu í vörninni og sýna áræðni í sókninni, þá fer allt vel . . . .
ÁFRAM KEFLAVÍK!!!