Fréttir

Körfubolti | 6. janúar 2003

KEFLAVÍK – NJARÐVÍK. Nágrannaslagur í deildinni á morgun, þriðjudag, kl. 19.15

Árið fer vel af stað fyrir körfuboltaunnendur í Keflavík og Njarðvík því í þessari viku fara fram tveir leikir milli stórveldanna, báðir í Keflavík, eins konar “míní-úrslitakeppni” Reykjanesbæjar!. Fyrri leikurinn er í Intersport-deildinni annað kvöld og hefst kl. 19.15 og síðan er leikur í 8 liða úrslitum Bikarkeppninnar á föstudaginn, einnig kl. 19.15.

Liðin hafa mæst þrisvar á leiktíðinni, fyrst vann Keflavík tvisvar í Reykjanesmótinu en síðan náði Njarðvík sigri í fyrsta leik deildarinnar þar sem Pete Philo fór á kostum. Síðan þá hefur Keflavík leikið heldur betur, vann Kjörísbikarinn og er í þriðja sæti deildarinnar. En Njarðvík er aðeins tveimur stigum á eftir og getur með sigri komist upp fyrir Keflavík á morgun. Það er hins vegar gömul saga og ný að staða þessara félaga í deildinni skiptir ekki miklu máli þegar þau mætast.

Njarðvíkurliðið var óstöðvandi í fyrra og vann okkur örugglega í úrslitum Íslandsmótsins, en missti síðan þrjá lykilleikmenn fyrir þetta tímabil, Brenton, Loga og Teit. En Teitur sneri fljótlega aftur og síðan skiptu Njarðvíkingar um Kana, Philo var sendur heim og GI Hunter fenginn í staðinn. Hunter er mikill skorari og náði m.a. þeim einstaka árangri að skora öll stig liðsins í síðasta leikhluta gegn Breiðablik á dögunum. Það hins vegar skarð fyrir skildi að Páll Kristinsson verður líklega ekki með Njarðvíkingum þar sem hann varð fyrir óhappi á æfingu á dögunum og meiddi sig á öxl. Ekki er ljóst hve alvarleg meiðslin eru, en þó gæti Páll verið frá keppni í einhvern tíma, hugsanlega viku eða vikur.

Okkar menn hafa nýtt jólafríið vel til æfinga, auk þess sem flestir fengu ágætis hvíld. Nú er bara að vona að grannarnir laði það besta fram hjá okkar mönnum svo að við fáum tvo toppleiki í vikunni – vonandi með hagstæðum úrslitum. Áfram Keflavík!