Fréttir

Körfubolti | 30. mars 2005

Keflavíkingar komnir í úrslit á móti Snæfell

Keflavík sigraði ÍR með miklum yfirburðum í Seljaskóla í kvöld. Lokatölur 72-97 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 24-51.

Eftir að hafa farið í Seljaskóla á mánudaginn síðasta og upplifað frábæra stemmingu bæði hjá leikmönnum og ekki síður áhorfendum, þá bjóst maður við að ÍR myndu mæta vel undirbúnir og tilbúnir í leikinn.  Bannað var að koma með trommur og annað sem hjálpar við að halda uppi stemmingu, fannst þeim lætin og stemmingin of mikil í síðasta leik.  Þetta hafði ekkert að segja, áhorfendur mættu öflugir í leikinn og létu vel í sér heyra. Leikurinn fór frekar rólega af stað, Maggi og Jonni heitir. Staðan eftir fyrsta leikhluta 12 - 20. Annar leikhluti var sá besti sem Keflavík hefur spilað í ár, og vörnin hreint frábær.  ÍR sem hafði komist þetta langt í úrslitakeppninni á góðri baráttu, var gjörsamlega slegið út af laginum og komust vart yfir miðju. Pressuvörnin hjá Keflavík var svakaleg á þessum kafla og allir leikmenn að spila hana 100%. Sverrir og Jonni börðust eins og sannir stríðsmenn sem ætluðu sér sigur í þessari orustu. Gunni Stef. kom sterkur inn og fullur sjálftrausts og setti niður þrjá þrista í leiknum. Davíð kom einnig sterkur af bekknum og barðist vel. Staðan eftir þennan frábæra kafla var 24-51 og 27 stiga forusta staðreynd. Á þessum kafla má segja að Keflavík hafi verið búið að gera út um leikinn

Í seinni hálfleik byrjaði Keflavík aftur af krafti með Magga og Sverri í fararbroti. Sverrir var ekki bara að spila fanta vörn heldur átti hann mörg falleg gegnumbrot og góðar sendingar. Maggi var sjóðheitur fyrir utan 3 stigalínuna. Keflavík komst mest 34 stigum yfir 28-62 og þeir leikmenn sem spilað hafa mest í vetur komnir á bekkinn. Leikinn kláruðu svo Gunni E. Davíð, Sævar, Halldór og Gunni Stef. Allir 12 leikmenn komust á blað í leiknum enda hefur Keflavík á að skipa góðri liðsheild.  Lokamínutur leiksins voru lengi að líða, enda leikurinn í raun löngu búinn.

Liðið lék allt vel í leiknum og erfitt að taka einhvern úr og hrósa fyrir framistöðu.  Sverrir barðist vel eins og oft áður en var líka mjög ógnandi í sókn, Jonni spila frábæra vörn og tók 9 sóknarfráköst, Maggi skoraði 4 stiga körfur og 20 stig á 23 mínutum. Gunni Stef. skoraði 14 stig á 18 mín. og svona mæti lengi telja.

ÍR fær hrós skilið fyrir að komast þetta langt, að slá út bikarmeistara Njarðvík var eitthvað sem kom mörgum á óvart, nema þeim sjálfum.  Þeir mætu líka einbeitir í fyrsta leik í Keflavík og unnu sannfærandi sigur. Það sem vantaði kannski uppá er meiri reynsla og breidd.  Einnig verður að minnast á að mjög fáir stuðningsmenn liðsins sjá ástæðu til að fylgja liðinu á útileiki.  Áhorfendur skipta miklu máli þegar svona langt er komið í úrslitakeppni og geta skipt sköpum.  Í liði ÍR eru margir ungir leikmenn sem hafa lært mikið og koma enn sterkari til leiks á næsta tímabili. Takk fyrir ÍR fyrir drengilega keppni.

Stigahæstir í kvöld voru Maggi 20 stig.  Gunni Stef. Sverrir og Nick með 14 stig og Nick með 10 stig. Tölfræði_úr_leiknum_hér. 

Keflavík og Snæfell mæstast því annað árið í röð í Úrslitaleikjum um Íslandasmeistaratitilinn.

Fyrsti leikurinn verður á föstudaginn kl 19.15 í Keflavík.  Leikur 2. verður á Stykkishólmi á mánudaginn kl.19.00.  Leikur 3. verður í Keflavík á fimmtudaginn 7. apríl kl. 19.00

 

                                                                                                                              

 

 

 

 

 

Mynd af vf.is