Keflavíkingar mæta grimmir til leiks í kvöld
Nú er komið að þriðja leik Keflavíkur og Snæfels um Íslandsbikarinn 2005. Staðan 1-1 eftir ósigur í Fjárhúsinu á Stykkishólmi á mánudaginn. Það þarf ekki að fara mörgum orðum um mikilvægi leiksins, enda það lið sem þennan leik vinnur komið í þægilega stöðu og þarf bara einn sigur enn. Keflavík hefur haft gott tak á Snæfelli í Sláturhúsinu og engin ástæða til að ætla að það breytist í kvöld. Leikmenn verða að mæta grimmir í leikinn strax frá fyrstu mín. enda hefur Snæfell á að skipa mjög góðu byrjunarliði. Síðasti leikur var jafn til enda og gat sigur eins fallið okkar meginn. Smá einbeitingarleysi í lok leiks varð okkur að falli og svo settu mistök á ritaraborði strik í reikninginn. Ekki verður farið nánar út í það hér, enda um fátt annað verið rætt síðustu daga.
Gaman var að sjá Gunnar Einarsson í síðasta leik, Gunni lék mjög vel og er að komast í sitt besta form eftir meiðslin sem hann fékk í einvíginu á móti Grindavík. Jonni,Nick og Maggi áttu einnig góðan leik á Stykkishólmi. Tony hefur oft leikið betur og má segja að 7-9 stig hafi vantað frá honum í þeim leik.
Keflavík mun mæta í leikinn eins og særð ljón, enda alls ekki sáttir við tapið á mánudag. Áhorfendur verða líka að fjölmenna og láta vel í sér heyra. Það er pottþétt skemmtun í boði í Sláturhúsinu í kvöld kl 19.00. Áfram KEFLAVIK.