Keflavíkur partý
Hvað er Keflavíkur partý?
Svar: Kvöld sem er ætlað öllum sem tengast körfunni í Keflavík. Gamlir, ungir, feitir, mjóir, langir, stuttir, leikmenn, stjórnarmenn, trommusveitin og allir hinir.
Hvað verður í boði?
Svar: Léttar veitingar, Breiðbandið, DJ B3ggs, happadrætti, viltu vinna bjór með Einsa Skafta og margt fleira.
Hver er tilgangurinn með þessu öllu saman?
Svar: Góð spurning. Málið er bara að hittast og skemmta sér saman. Einfalt mál.
Hvar fer þetta svo allt fram?
Svar: KK salurinn Vesturbraut.
Hvenær verður þetta eigilega?
Svar: Föstudaginn 4 mars.
Svona þarftu að fara að:
1. Taka frá kvöldið
2. Kaupa miða
3. Fara með sparifötin í hreinsun.