Fréttir

Körfubolti | 5. desember 2004

Keflavíkurdrengir leggja í langt og strangt ferðalag í fyrramálið

Þá er komið að lokasprettinum í riðlakeppni Bikarkeppni Evrópu. Eftir frækilega frammistöðu munu tveir síðustu leikirnir leiða í ljós í hvaða sæti Keflavík endar. Enn þá er 1., 2. og 3. sætið mögulegt. Leikirnir í vikunni eru þessir:

  • Aarhus, þriðjud. 7. des. kl. 19.30 að staðartíma (18.30 að ísl. tíma) Bakken – Keflavík
  • Madeira, þriðjud. 7. des. kl. 20.30 að staðartíma (20.30 að ísl. tíma): Madeira – Reims
  • Madeira, fimmtud. 9. des. kl. 20.30 að staðartíma (20.30 að ísl. tíma): Madeiar – Keflavík

Áður en þessi törn hefst geta þrjú lið raðað sér í þrjú efstu sætin, Bakken, Keflavík og Madeira. En ef Keflavík nær sigri í öðrum hvorum leiknum er eitt af tveimur efstu sætunum öruggt. Og ef Keflavík nær sigri gegn Bakken, verður að teljast afar líklegt að við náum efsta sætinu í riðlinum vegna þess að Kef vann Madeira með 13 stiga mun í Keflavík.

Ekki er hægt að spá of mikið í úrslitin, en þó er tvennt alveg ljóst. Annars vegar að við eigum harma að hefna gegn Dönunum sem stálu af okkur sigrinum með einu stig hér heima, og hins vegar að því ofar sem við lendum í riðlinum því meiri séns eigum við á því að fá “viðráðanlegan” andstæðing í næstu umferð, svo það er til mikils að vinna.

Ferðalagið sem hefst í fyrramálið er bæði langt og strangt. Lagt er af stað með 12 leikmenn, tvo þjálfara (Siggi og Falur), einn sjúkraþjálfara (Falur Daða) og þrjá stjórnarmenn (Biggi Braga, Siggi B og Hrannar fer hálfa leið).

Á morgun, mánudag hittast menn kl. 6.30 á flugvellinum. Eftir flug og 3ja tíma lestarferð til Árósa koma menn á Radisson SAS hótelið um kl. 17.30 að staðartíma, eftir 10 klst. ferðalag. Um kvöldið er æfing og afslöppun, kannski tekið í spil.

Þriðjudagurinn er leikdagur. Spennan vaxandi. Góður morgunmatur, stutt æfing þar sem farið er yfir leikplanið og menn venjast körfunum. Hádegismatur og svo leggja menn sig og safna kröftum. Aftur borðað, nú léttmeti, um fjögur-leytið og eftir það fer adrenalínið að flæða um líkamann. Rúta í Risskov-höllina sem er skemmtilegt íþróttahús og von á 1000 manns, líka einhverjum Íslendingum. Stemming og læti. Vonandi sigur.... Að leik loknum er góður kvöldverður og svo farið í háttinn.

Miðvikudagurinn er strangur ferðadagur. Að vísu fá menn að sofa aðeins frameftir en síðan er lagt af stað með lest til Köben, þaðan er flogið til Lissabon. Frá Lissabon er flogið til eyjunnar Madeira, rétt norðan við Kanarí, vestur af ströndum Afríku. Madeira er vart meira en klettur í hafinu og lendir flugvélin á þeim kletti rétt um miðnætti eftir um 12 klst. ferðalag.

Fimmtudagurinn er leikdagur. Nú er von á sól og 20 stiga hita á paradísareyjunni Madeira. Þegar að leiknum kemur munu menn vita meira um stöðuna í riðlinum og mikilvægi leiksins en núna. Allt mögulegt. En leikurinn verður án efa spennandi og gaman væri að geta hefnt fyrir eins stigs ósigur frá því í fyrra.

Föstudagurinn hefst snemma og endar seint, ef svo má segja. Klukkan sex um morguninn þarf mannskapurinn að gera sig kláran fyrir flug til Lissabon. Frá Lissabon er síðan flogið aftur til Kastrup í Köben en þar þurfa menn að bíða í hálfan dag áður en flogið verður heim til Kef, en reiknað er með lendingu um miðnætti á Leifsstöð.

Sem sagt, fjör framundan hjá Keflavíkurliðinu . . . .